Skip to main content

Hólmavík - íbúabyggð og ferðamannastaður

Verkefnið Hólmavík – íbúabyggð og ferðamannastaður var á dagskránni á árunum 2018-2020. Um var að ræða rannsókn og hugmyndavinnu sem unnin er að frumkvæði Rannsóknasetursins og í samvinnu við sveitarfélagið Strandabyggð, Vestfjarðastofu og Sóknaráætlun Vestfjarða. Í framhaldinu varð m.a. til grein um Hólmavíkurþorp árið 1918 eftir Jón Jónsson sem birtist í bókinni Strandir 1918 sem kom út 2020.  

Tveir starfsmenn unnu hjá setrinu við verkefnið með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið 2018, Agnes Jónsdóttir þjóðfræðinemi og Guðrún Gígja Jónsdóttir MA-nemi í hagnýtri menningarmiðlun. Afraksturinn var skýrsla sem leit dagsins ljós í sumarlok og var afhent sveitarfélaginu til úrvinnslu í byrjun október 2018. Öruggt má telja að hún kemur Strandabyggð að góðu gagni við undirbúning og skipulag, auk þess að nýtast við fjármögnun verkefna.

Verkefnið snýst um hugmyndavinnu og greiningu á sérstöðu þorpsins á Hólmavík og í framhaldinu eru gerðar tillögur um umbætur á útivistarsvæðum og almannarýmum í þorpinu, bæði íbúum og ferðafólki til hagsbóta. Haldnir voru íbúafundir um verkefnið á Hólmavík og heilmiklu efni safnað um skoðanir heimamanna. Verkefnið var unnið í samstarfi við sveitarfélagið Strandabyggð sem fékk stuðning frá Styrktarsjóði EBÍ til vinnunar.

Í framhaldinu var svo í samstarfi við Sóknaráætlun Vestfjarða unnið að því að gera uppskrift að aðferðinni við vinnu að verkefninu, svo hægt yrði að ráðast í sambærilegt vinnuferli í öðrum minni þorpum í fjórðungnum. Auk þess voru niðurstöðurnar fyrir Hólmavík settar fram með aðgengilegum hætti í skýrslu fyrir Vestfjarðastofu og Strandabyggð. Þessum verkhluta sem var hluti af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Vestfjarða lauk vorið 2020. Í framhaldinu vann Jóhanna Rósmundsdóttir kennaranemi á Hólmavík sérhæfða hugmyndavinnu um notkun gamalla ljósmynda úr þorpinu í grenndarkennslu í grunnskóla sumarið 2020. 

Í framhaldi af þessari vinnu var ráðist í að sækja um styrk til Húsafriðunarnefndar, í samvinnu við sveitarfélagið Strandabyggð, um að gera tillögu um verndarsvæði í byggð á Hólmavík, húsakönnun í gamla þorpinu og fleira. Styrkur fékkst og hefur verið unnið að þessu verkefni í samvinnu við sveitarfélagið árin 2021-2022. Gögnin og tillögurnar frá fyrri áföngum vinnunnar með Hólmavíkurþorp koma að góðu gagni. 

Agnes Jónsdóttir þjóðfræðinemi og Guðrún Gígja Jónsdóttir MA-nemi í hagnýtri menningarmiðlun