Skip to main content

Dagbækur fyrri alda

Eitt af áhersluverkefnum Rannsóknasetursins er vinna með persónulegar heimildir, frá 19. öld og upphafi þeirrar 20. Þessi vinna er bæði á landsvísu og á Ströndum sérstaklega. Mikið er til af persónulegum heimildum í handritasöfnum, m.a. dagbókum. Við höfum rannsakað dagbækur af svæðinu frá fyrri tímum og ætlunin er að gera þær aðgengilegar fyrir fræðimenn og almenning. Unnið er að nokkrum verkefnum í tengslum við dagbækurnar. Ef fólk veit um dagbækur Strandamanna á söfnum eða í einkaeigu erum við áfjáð í að fá vitneskju um þær (jonjonsson@hi.is). 

Yfirlit um eldri dagbækur á söfnum 

Sumarið 2022 kom til framkvæmda verkefni sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Orri Jónsson þjóðfræðinemi vann þá að því á vegum Rannsóknasetursins að ná yfirsýn yfir hvað sé til af dagbókum frá því fyrir 1940 í handrita- og skjalasöfnum landsins. Mikill fróðleikur safnaðist, en eftir er að gera þessar upplýsingar aðgengilegar á vefkorti. Stefnt er að því að það komi til framkvæmda á næstu árum. 

Dagbækur frá árinu 1918

Rannsóknasetrið tók til sérstakrar skoðunar þrjár dagbækur Strandamanna frá árinu 1918 í tengslum við verkefnið Strandir 1918 sem var samvinnuverkefni fjölda aðila á Ströndum í tengslum við 100 ára fullveldisafmæli Íslands. Hér má nálgast uppskrift á dagbók Þorsteins Guðbrandssonar á Kaldrananesi frá árinu 1918 (Lbs 3809 8vo), með nútímastafsetningu og formála eftir Jón Jónsson. Skjalið var fyrst birt af Rannsóknasetrinu á héraðsfréttavefnum strandir.is á Þorláksmessu 2018 (sem jólagjöf setursins til Strandamanna). Einnig má skoða dagbókina hér á vefnum: 

Hinar dagbækurnar sem unnið var með í verkefninu Strandir 1918 voru dagbók Níelsar Jónssonar á Grænhól á Gjögri í Árneshreppi og dagbók Kristjáns Helgasonar á Þambárvöllum í Bitru. Dagbók Þorsteins frá þessu ári var birt í bókinni Strandir 1918 og dagbók Níelsar að hluta. 

Halldór Jónsson frá Tind

Dagbækur Halldórs Jónssonar í Miðdalsgröf eru vel þekktar, en Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur hefur skrifað um þær í bókunum Bræður af Ströndum og Menntun, ást og sorg, fyrir aldamótin 2000. 

Halldór Jónsson frá Tind, bóndi í Miðdalsgröf, skrifaði dagbók á árunum 1888 til 1912. Halldór var 17 ára gamall þegar dagbókaritunin hófst og hann hélt henni áfram til dauðadags. Halldór drukknaði í Steingrímsfirðinum þegar bátur fórst í róðri úr Kirkjubólstanganum haustið 1912. Dagbækurnar sjálfar eru varðveittar á Handritadeild Landsbókasafns og margvísleg önnur skrif Halldórs og Níelasar bróður hans. Nokkur hluti dagbókarinnar var vélritaður upp og bundinn inn í bækur á síðari hluta 20. aldar, líklega í kringum 1970. Þær eru nú í okkar vörslu.

Sagnfræðingurinn Sigurður Gylfi Magnússon gerði Halldór og Níels bróður hans fyrst aðgengilega í bókunum Bræður af Ströndum og Menntun, ást og sorg, um síðustu aldamót. Í þessum bókum eru ýmis sýnishorn úr skrifum þeirra birt og fjallað um líf þeirra og störf.

Hér er tengill á hluta af ársyfirlitum úr dagbókum Halldórs, frá 1898-1911 sem hann skrifar um áramót hvert ár. Í þeirri samantekt kemur margt fram um tíðarfar, viðburði og framkvæmdir í Steingrímsfirði á Ströndum. Þetta  eru yfirlitin yfir árin 1898-1911, skrifuð upp eftir vélritaða eintakinu í maí 2024. 

Við leysum úr skammstöfunum ef við erum viss um merkinguna og færum textann til nútímastafsetningar til að hann verði læsilegri.

Sighvatur Borgfirðingur og dagbókin hans

Sighvatur Borgfirðingur bjó hann á Klúku í Bjarnarfirði á Ströndum á árunum 1869-1873. Þaðan flutti hann með fjölskyldu sína að Höfða í Dýrafirði og var þessi sískrifandi alþýðufræðimaður síðan kenndur við þann bæ. Skriftin hans Sighvatar er auðlæsileg miðað við 19. aldar skrift. Dagbók hans er varðveitt í tveimur útgáfum á Landsbókasafni. Við höfum grófskrifað upp þennan hluta af dagbók Sighvatar Grímssonar Borgfirðings. 

Hér er tengill inn á google.doc skjal þar sem vinnan fór fram (hægt er að skoða uppskriftina þar): 

Hér eru tenglar inn á dagbókina hans á vefnum handrit.is.

Dagbók Jóns Jónssonar (Miðdalsgröf, Naustavík, Heiðarbæ, Fitjum og Ósi)

Jón Jónsson (1795-1879) hélt dagbók frá ársbyrjun 1846 þangað til þremur dögum áður en hann dó vorið 1879. Dagbókin er óvenjuleg að því leyti að hún lýsir fátækt í sveitasamfélaginu á 19. öld sérstaklega vel. Jón var fyrst bóndi í Miðdalsgröf, síðar húsmaður í Naustavík og á hálfgerðum hrakningi á köflum á gamals aldri. Unnið er að rannsókn á dagbókinni og útgáfa á sýnisbók fyrirhuguð. Jón Jónsson, Eiríkur Valdimarsson og Dagrún Ósk Jónsdóttir gerðu þrjá útvarpsþætti sem hétu Dagbók Jóns gamla, í samvinnu við RÚV fyrir jólin 2024 og þeir voru endurfluttir í september 2025. 

Einnig hafa verið skrifaðar tvær greinar um efnið og fluttir allmargir fyrirlestrar. 

Hér fer uppskriftarvinnan fram: 

Tengill á dagbókina sjálfa á vefnum handrit.is er hér á eftir, en handritasafn Landsbókasafns Háskólabókasafns ljósmyndaði handritið sérstaklega fyrir þessa uppskriftarvinnu.