
Eðlisfræði
180 einingar - Ph.D. gráða
Námið er þriggja til fjögurra ára fræðilegt rannsóknatengt framhaldsnám í eðlisfræði við Raunvísindadeild.
Námið er 180-240 einingar og er fullgilt próf til prófgráðunnar philosophiae doctor, PhD.

Um námið
Doktorsnám felst einkum í rannsókn sem lýkur með doktorsritgerð sem skal vera 180 einingar.
Doktorsnefnd getur gert kröfu um að nemandi í doktorsnámi ljúki einnig námskeiðum.
Einingar fyrir námskeið bætast ofan á þær einingar sem gefnar eru fyrir doktorsritgerð.
Nánar um hæfniviðmið í kennsluskrá.
MS-gráða frá Raunvísindadeild eða sambærileg.
Heimilt er að veita undanþágu þeim umsækjendum sem hafa lokið 90-120 ECTS meistaraprófi á stigi 6.1 með lokaverkefni undir 30 ECTS, hafi þeir í umsókn sinni gert grein fyrir rannsóknarreynslu, sem fastanefnd metur sem ígildi 30 ECTS lokaverkefnis.
Hafðu samband
Nemendaþjónusta VoN
s. 525 4466 - nemvon@hi.is
Opið virka daga frá 09:00-15:30
Tæknigarður - Dunhaga 5, 107 Reykjavík
Askja - Sturlugata 7, 102 Reykjavík
Fylgstu með Verkfræði- og náttúruvísindasviði
