Skip to main content

Sálfræðiráðgjöf háskólanema

Sálfræðiráðgjöf háskólanema - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sálfræðiráðgjöf háskólanema er þjálfunarstöð meistaranema í klínískri sálfræði. Þar er háskólanemum og börnum þeirra boðið upp á sálfræðiþjónustu. Sálfræðinemarnir veita þjónustuna undir handleiðslu sérfræðinga í klínískri sálfræði. Ráðgjöfin hefur verið starfrækt síðan 2013. Hlutverk ráðgjafarinnar er fyrst og fremst að þjálfa meistaranema í klínískri sálfræði í greiningu, mati og meðferð á algengum geðröskunum.

Ráðgjöfin er opin á meðan á kennslu stendur, september til desember og janúar til maí.

Starfsemin fer fram í kjallara Nýja Garðs.

Sálfræðiráðgjöf háskólanema hefur það að markmiði:

  • Að þjálfa framhaldsnema í sálfræði í að sinna klínískum störfum.
  • Að veita háskólanemum og börnum þeirra sálfræðiþjónustu.

Sálfræðinemar vinna undir faglegri handleiðslu löggiltra sálfræðinga.

""
Tengt efni