Ritver Háskóla Íslands býður nemendum upp á stuðning við hvers konar fræðileg skrif. Starfsmenn Ritvers eru stúdentar í framhaldsnámi sem hafa hlotið sérstaka menntun um ritun og ráðgjöf, og þjálfun í að leiðbeina öðrum um skrif. Kjölfestan í starfi Ritvers eru viðtalsfundir, persónuleg ráðgjöf við stúdenta með verkefni í smíðum. Stúdentar geta komið og fengið stuðning eða góð ráð um hvaðeina sem snýr að skrifum. Allt frá fyrstu hugmyndum og skipulagi, að frágangi og gerð heimildaskrá. Ritverið tekur ekki að sér að prófarkalesa og leiðrétta, heldur styrkir það höfunda til sjálfshjálpar. Bóka ráðgjöf Hvar erum við? Ritverið er staðsett bæði á Þjóðarbókhlöðu og á bókasafni Menntavísindasviðs í Stakkahlíð. Opnunartímar eru breytilegir.Sími: 525-5975 (Stakkahlíð) og 525-5696 (Þjóðarbókhlaða). Netfang: ritver@hi.is Viðtalsfundir Stúdentar geta bókað viðtalsfund eða geta litið inn ef starfsmaður er laus á vakt. Ritverið tekur á móti stúdentum á öllum stigum náms, í grunn- og framhaldsnámi. Ritverið skipuleggur námskeið og vinnustofur fyrir þá sem eru með lokaverkefni í smíðum og þeir eiga greiðan aðgang að ráðgjöfum Ritvers á öllum stigum skrifanna. Tengt efni Vefur Ritvers Ritverið á Facebook emailfacebooklinkedintwitter
Þarfnast þessi síða lagfæringar? Var efnið hjálplegt? Var efnið hjálplegt? * Já Nei Endilega láttu okkur vita hvað má betur fara * Viltu fá svar frá okkur? Viltu fá svar frá okkur? Netfang * Svo hægt sé að hafa samband við þig. Skjáskot Settu inn skjáskot hér ef þú telur þörf á.Skrár verða að vera minni en 2 MB.Leyfðar skráartegundir: gif jpg jpeg png. CAPTCHASía fyrir ruslpóst Hvaða stafir eru á myndinni? * Skrifaðu stafina sem sjást á myndinni.