Ekki er gengið frá formlegu mati nema fyrir innritaða nemendur og þá eingöngu miðað við þá námsleið og útgáfu sem viðkomandi er innritaður á. Til að sækja um mat á fyrra námi skal fylla út rafrænt eyðublað hér fyrir neðan. Umsóknum og fylgiskjölum á að skila til kennsluskrifstofu Menntavísindasviðs í Stakkahlíð. Umsóknir sem berast fyrir 10. ágúst verða að jafnaði afgreiddar áður en endurskoðun skráninga á haustmisseri lýkur. Umsóknir sem berast fyrir 1. desember verða að jafnaði afgreiddar áður en endurskoðun skráninga á vormisseri lýkur. Umsókn um mat á fyrra námi Hér getur þú fyllt út rafræna umsókn um mat á fyrra námi. Við viljum benda á að lesa vel yfir þær reglur sem gilda um mat á fyrra námi. Þær er að finna hér í bláa kassanum fyrir neðan. Rafrænt eyðublað Reglur I. Almennt Hafi stúdent sem hefur nám við Menntavísindasvið Háskóla Íslands stundað annað sambærilegt og jafngilt háskólanám áður getur hann sótt um að fá það nám metið sem ígildi hluta náms á Menntavísindasviði. Umsóknir sem berast fyrir 10. ágúst eru að jafnaði afgreiddar áður en endurskoðun skráninga á haustmisseri lýkur. Umsóknir sem berast fyrir 1. desember eru að jafnaði afgreiddar áður en endurskoðun skráninga á vormisseri lýkur. Umsækjendur um mat á fyrra námi (sem m.a. getur falið í sér undanþágur frá tilteknum námskeiðum) geta ekki gengið út frá því að fallist verði á umsóknina og er því bent á að sækja námið eins og mat hafi ekki farið fram þar til annað kemur í ljós. II. Mat á vegum deilda Hver deild ber ábyrgð á mati á fyrra námi í samstarfi við kennsluskrifstofu. Þeir aðilar sem deild tilnefnir til að sinna matinu hverju sinni mynda matsnefnd. Til að stuðla að samræmi milli deilda byggist matið á viðmiðum sem koma fram í V. kafla í reglum þessum. Kennsluskrifstofa tekur á móti umsóknum og gengur formlega frá niðurstöðum matsnefnda. III. Frágangur umsókna Til að matsnefnd geti afgreitt umsókn um mat á fyrra háskólanámi þarf umsókn að uppfylla eftirfarandi skilyrði: Stúdent skal tilgreina hvaða námi hann hyggst ljúka á Menntavísindasviði. Stúdent skal tilgreina þau námskeið á Menntavísindasviði sem hann telur fyrra háskólanám sitt jafngilda. Stúdent skal tilgreina hvaða námskeiðum hann lauk í fyrra námi sínu sem hann óskar eftir að fá metin. Fram komi heiti námskeiða, einingafjöldi (ECTS) og námsstig, þ.e. hvort um grunn- eða framhaldsnám er að ræða. Umsókn skal fylgja námsferilsyfirlit stimplað og undirritað af viðkomandi stofnun og lýsing á námskeiðum. Í umsókn skal koma fram hvort áður hefur verið sótt um mat á sömu námsþáttum við Háskóla Íslands eða aðra skóla. Úrskurður fyrra mats þarf að fylgja umsókn. Umsækjendur bera ábyrgð á því að allar ofangreindar upplýsingar komi fram í umsókn svo að hægt sé að afgreiða hana. Sé umsókn ekki fullnægjandi verður hún ekki afgreidd. IV. Afgreiðsla umsókna Matsnefnd hverrar deildar afgreiðir umsóknir með hliðsjón af viðmiðum í V. kafla í reglum þessum og í samráði við formenn viðkomandi námsbrauta eftir því sem við á. Leitað er umsagnar kennara á því sviði sem um er að ræða, ef með þarf. Að jafnaði má reikna með að afgreiðsla umsókna taki 4-6 vikur. Að afgreiðslu lokinni fær stúdent tilkynningu í tölvupósti um niðurstöðu mats og afrit er sent Nemendaskrá til skráningar. Bæði umsókn og niðurstaða matsins er vistað við námsferil stúdents. V. Viðmið um mat Almenn ákvæði Við mat á fyrra námi skal leitast við að meta námskeið á hverju sviði sem ígildi sambærilegra og jafngildra námskeiða í fyrirhuguðu námi við Menntavísindasvið jafnvel þótt innihald námskeiðanna sé ekki að öllu leyti hið sama. Hafi stúdent verið veitt prófgráða frá Kennaraháskóla Íslands eða fyrirrennurum hans er heimilt að meta nám hans í heild óháð því hvaða námskeiðum var lokið. Nemandi sem óskar eftir að hefja nám að nýju, eftir að hafa hætt námi um tíma, skal hefja nám samkvæmt því námsskipulagi sem gildir þegar hann hefur nám að nýju og skal liggja fyrir, af hálfu deildar, tillaga um það hvort og með hvaða hætti eldri námskeið eru látin gilda á nýjum ferli. Takmarkanir á mati Almennt gildir að annað nám en formlegt háskólanám er ekki heimilt að meta. Lokaverkefni til prófgráðu er ekki heimilt að meta. Sú meginregla gildir að til að ljúka prófgráðu frá Menntavísindasviði þarf helmingur námsins að vera stundaður við sviðið. Jafnframt má gera þá kröfu að a.m.k. helmingur einstakra þátta náms, t.d. á kjörsviðum á hverri námsleið, sé stundaður við sviðið. Vettvangsnám er að jafnaði ekki metið. Nemendur sem hefja meistaranám við Menntavísindasvið geta einungis fengið metin námskeið sem þeir hafa lokið á meistarastigi við viðurkenndar háskólastofnanir. Hafi nemandi lokið meistaranámi en kýs að ljúka annarri meistaragráðu, sem skarast efnislega við hina fyrri, þarf hann að ljúka a.m.k. 60 ECTS einingum beinlínis vegna þeirrar síðarnefndu. Almennt er fyrra nám ekki metið séu liðin 10 ár eða meira frá því náminu lauk. Þó er heimilt að víkja frá reglunni um fyrningu náms ef fyrra nám var umfangsmikið og heildstætt og lauk með prófgráðu. Matsnefnd er aðeins heimilt að meta heil námskeið úr fyrra námi í stað heilla námskeiða. Ekki er heimilt að meta námskeið sem lokið hefur verið með einkunn undir 6. Almennt gildir sú regla að þeir sem lokið hafa þriggja ára námi frá Kennaraskóla Íslands, Fósturskóla Íslands og Þroskaþjálfaskóla Íslands fá að hámarki 150 ECTS einingar metnar. Þeir sem lokið hafa tveggja ára námi frá Íþróttakennaraskóla Íslands fá að hámarki 120 ECTS einingar metnar. Nemendur sem lokið hafa námi frá ofantöldum skólum og taka 30 eða 60 ECTS eininga viðbótarnám til bakkalárgráðu frá deildum Menntavísindasviðs geta ekki fengið hluta af því metinn. Menntavísindasvið, uppfært í maí 2020. Mat á fyrra námi, maí 2020 Rules about the evaluation of previous study Upplýsingar um mat á fyrra námi í Kennslufræði framhaldsskóla, M.Ed. fyrir starfandi framhaldsskólakennara emailfacebooklinkedintwitter
Þarfnast þessi síða lagfæringar? Var efnið hjálplegt? Var efnið hjálplegt? * Já Nei Endilega láttu okkur vita hvað má betur fara * Viltu fá svar frá okkur? Viltu fá svar frá okkur? Netfang * Svo hægt sé að hafa samband við þig. Skjáskot Settu inn skjáskot hér ef þú telur þörf á.Skrár verða að vera minni en 2 MB.Leyfðar skráartegundir: gif jpg jpeg png. CAPTCHASía fyrir ruslpóst Hvaða stafir eru á myndinni? * Skrifaðu stafina sem sjást á myndinni.