Skip to main content
21. desember 2018

Verðlaunaður fyrir afburðaárangur í verkfræði við Háskóla Íslands

Sigurður Egilsson, BS-nemi í umhverfis- og byggingarverkfræði við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands, hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Frú Vigdís Finnbogadóttir, systir Þorvalds, afhenti styrkinn við hátíðlega athöfn á Litla torgi.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja efnilega nema í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms í verkfræði. Nemandi, sem er með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi, hlýtur styrkinn hverju sinni.

Sigurður Egilsson lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2016 og hóf BS-nám í umhverfis- og byggingarverkfræði haustið 2016.

Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952.

Frekari upplýsingar um sjóði Háskóla Íslands er að finna á sjóðavef Háskóla Íslands, sjodir.hi.is. Einnig hjá Helgu Brá Árnadóttur, verkefnisstjóra Styrktarsjóða Háskóla Íslands, helgab@hi.is, sími 525-5894.

Sigurður Egilsson og Vigdís Finnbogadóttir
Sigurður Egilsson, Vigdís Finnbogadóttir og Sigurður Magnús Garðarsson
Sigurður Egilsson og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
Sigurður Magnús Garðarsson, Vigdís Finnbogadóttir, Sigurður Egilsson og Jón Atli Benediktsson
Frá athöfn við styrkveitingu úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents