Skip to main content
19. janúar 2022

Sigurður Magnús endurráðinn forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs

Sigurður Magnús endurráðinn forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands hefur endurráðið Sigurð Magnús Garðarsson, prófessor í umhverfis- og byggingarverkfræði, sem forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands til næstu fimm ára. 

Sigurður Magnús hefur verið forseti sviðsins frá árinu 2017 en hann hefur starfað við Háskóla Íslands í hartnær tvo áratugi. Hann var ráðinn dósent í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands árið 2003 og varð prófessor árið 2007 en áður hafði hann starfað um árabil sem ráðgjafarverkfræðingur í verkefnum á sviðum vatna- og straumfræði, fyrst í Bandaríkjunum og síðar á Íslandi.

Sigurður Magnús lauk BS-prófi í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1991 og meistaragráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði 1993 og hagnýttri stærðfræði 1995, hvort tveggja frá University of Washington í Bandaríkjunum. Doktorsprófi í umhverfisverkfræði lauk Sigurður Magnús frá sama skóla árið 1997.

Sigurður Magnús hefur í rannsóknum sínum lagt áherslu á rannsóknir tengdar endurnýjanlegri orku, þá sérstaklega vatnsaflsvirkjanir, vatna- og straumfræði ásamt rannsóknum á neysluvatnsgæðum. Hann hefur birt fjölda vísindagreina og tekið þátt í fjölmörgum innlendum og erlendum rannsóknaverkefnum og meðal annars leitt rannsóknaverkefnið GEORG um alþjóðlegan rannsóknaklasa í jarðhita.

Þá hefur Sigurður Magnús gegnt ýmsum trúnaðar- og stjórnunarstörfum innan Háskóla Íslands, þar á meðal sem skorarformaður og deildarforseti og formaður Gæðanefndar háskólaráðs. Enn fremur var hann annar tveggja leiðtoga stýrihóps sem vann að mótun og innleiðingu nýrrar stefnu Háskóla Íslands fyrir árin 2016-2021. Sigurður Magnús hefur jafnframt verið stjórnarformaður Vísindagarða Háskóla Íslands frá miðju ári 2020 en þeir eru í örri uppbyggingu. 

Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands er eitt af fimm fræðasviðum Háskóla Íslands. Það skiptist í sex deildir: Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, Jarðvísindadeild, Líf- og umhverfisvísindadeild, Rafmagns- og tölvuverkfræðideild, Raunvísindadeild og Umhverfis- og byggingarverkfræðideild.
 

Sigurður Magnús Garðarsson