Skip to main content
13. febrúar 2018

Samstarf umhverfis- og auðlindafræði við atvinnulífið eflt

""

Möguleikar meistaranema í umhverfis- og auðlindafræði til starfsnáms aukast til muna með samstarfssamningum sem námsleiðin hefur gert við við sex stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki. Sveinn Agnarsson, formaður námsstjórnar í umhverfis- og auðlindafræði, undirritaði samningana ásamt fulltrúum stofnananna og fyrirtækjanna á dögunum.

Samstarfsaðilarnir nýju eru Orkustofnun, Orkuveita Reykjavíkur, Samtök iðnaðarins, Skipulagsstofnun, Sorpa og Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Unnið er að samningum við fleiri stofnanir en fulltrúar Landgræðslu ríkisins og Náttúrufræðistofnunar voru einnig viðstödd fundinn. 

Markmið starfsnámsins er að efla tengsl við atvinnulífið, veita nemendum innsýn í starfsemi sem tengist fagsviðum námsins og gera þeim kleift að takast á við hagnýt úrlausnaefni. Markmiðið er enn fremur að tryggja nemendum þjálfun undir faglegri handleiðslu reyndra stjórnenda hjá frjálsum félagasamtökum, opinberum stofnunum og fyrirtækjum sem tengjast umhverfis- og auðlindafræði. Þetta er í takt við stefnu Háskóla Íslands, HÍ21, sem kveður m.a. á  um enn virkari þátttöku skólans í samfélagi og atvinnulífi. 

Námsleið í umhverfis- og auðlindafræði hefur verið í samstarfi við Landvernd um starfsþjálfun meistaranema frá árinu 2013 og eykur nú möguleika nemenda með fleiri samstarfssamningum. Nýju samningarnir eru gerðir að fyrirmynd samstarfsins við Landvernd. Í starfsþjálfun vinna nemar að einu veigamiklu verkefni, sem getur verið allt frá greiningu til stefnumótunar, og fá að auki innsýn í daglega starfsemi viðkomandi stofnunar eða fyrirtækis. 

Starfsþjálfunarverkefnin eru mótuð í samstarfi námsleiðarinnar og hverrar stofnunar og fyrirtækis fyrir sig og kennarar í náminu tryggja að verkefni uppfylli faglegar kröfur námsins. Að lokinni starfsþjálfun fá nemar verkefnin metin til eininga í meistaranámi sínu. 

 

Fulltrúar Háskóla Íslands og stofnana og fyrirtækja sem standa að starfsnáminu við undirritun samninganna á dögunum. MYND/Kristinn Ingvarsson