Skip to main content
14. nóvember 2022

Önnur þáttaröð af Heilsuhegðun ungra Íslendinga komin í loftið

Önnur þáttaröð af Heilsuhegðun ungra Íslendinga komin í loftið - á vefsíðu Háskóla Íslands

Önnur þáttaröð vísindahlaðvarpsins Heilsuhegðun ungra Íslendinga er farin af stað en þar er fjallað um lifnaðarhætti ungs fólks hér á landi. Hlaðvarpið byggist á samnefndri langtímarannsókn vísindafólks við Háskóla Íslands og er markmið hlaðvarpsins að miðla áfram nýjum rannsóknaniðurstöðum sem tengjast heilsuhegðun ungmenna hér á landi. Þættirnir koma út nú vikulega til jóla.

Hlaðvarpið, sem hóf göngu sína í fyrra, er samtalsvettvangur fræðafólks og framhaldsskólanema sem mikilvægur hluti þekkingarmiðlunar. Í hverjum þætti ræðir vísindafólk niðurstöður sínar á mannamáli við ungt fólk á framhaldsskólaaldri. Hver þáttur er 45 til 60 mínútur að lengd og eru þeir hugsaðir fyrir öll þau sem hafa áhuga á heilsu en ekki hvað síst fyrir ungt fólk og foreldra.

Markús Þórhallsson, sagnfræðingur og útvarpsmaður, hefur umsjón með hlaðvarpinu, sem framleitt er af Menntavísindasviði Háskólans. Tæknimaður er Eggert Gunnarsson og Adam Switala, doktorsnemi í tónlist, samdi stefið. 

Viðmælendur hlaðvarpsþáttaraðarinnar 2022 eru:

Viðmælendur: Óttar Birgisson doktorsnemi og Bertrand Lauth læknir.  

Viðmælendur: Hildur Inga Magnadóttir, foreldra- og uppeldisráðgjafi og doktorsnemi í heilbrigðisvísindum, og Eyrún Eggertsdóttir, sem lokið hefur grunnnámi í sálfræði og er 3ja barna móðir.

  • Tómstundir, hreyfing og mataræði ungs fólks  

Viðmælendur: Þuríður Ingvarsdóttir doktorsnemi og Gréta Jakobsdóttir lektor.

  • Nýstárleg skólaumhverfi á grunnskólastigi 

Viðmælendur: Gísli Rúnar Guðmundsson skólastjóri NÚ og Hallbera Gunnarsdóttir kennari Bláskógaskóla Laugarvatni. 

  • Nýstárleg skólaumhverfi á framhaldsskólastigi 

Viðmælendur: Sigurbjörn Árni Arngrímsson skólameistari Framhaldsskólans á Laugum og Lára Stefánsdóttir skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga.  

  • Skjánotkun - leiðir til lausna 

Viðmælendur: Steinunn Arnardóttir, Magnús Felix Tryggvason og Alexandra Gunnlaugsdóttir.

Háskóli Íslands styrkir gerð hlaðvarpsins úr styrktarsjóði sem snýr að samfélagsvirkni vísindamanna.

Hlaðvarpið Heilsuhegðun ungra Íslendinga er aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum og á heilsuhegdun.hi.is

Um rannsóknina

Heilsuhegðun ungra Íslendinga er umfangsmikil rannsókn þar sem skoðuð er staða og þróun á heilbrigðisþáttum ungmenna og breyting til langframa á hreyfingu, svefni, þreki, kyrrsetu og andlegum þáttum frá sjö til sautján ára aldurs. Um fimm hundruð reykvísk ungmenni, fædd árið 1999, hafa tekið þátt í rannsókninni.

Niðurstöður rannsóknarinnar hafa vakið mikla athygli í íslensku samfélagi enda gefa þær góða vísbendingu um stöðu og þróun fjölmargra heilsufarsþátta hjá þátttakendum. Þekkingarsköpun og aukin vitneskja um breytingar á heilsufari og velferð ungs fólks er nauðsynleg í öllum samfélögum. Ávinningur rannsóknarinnar er ótvíræður fyrir þróun og uppbyggingu velferðarsamfélagsins.

Rannsóknateymið á bak við Heilsuhegðun ungra Íslendinga.