Skip to main content
20. október 2021

Ný bók um refsingar fyrir galdra og guðlast

Ný bók um refsingar fyrir galdra og guðlast - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sögufélagið hefur gefið út Galdur og guðlast á 17. öld, tveggja binda verk eftir Má Jónsson, prófessor í sagnfræði við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Í bókunum eru teknir saman allir tiltækir dómar sem komu fyrir rétt og vörðuðu ákæru eða orðróm um galdra á árabilinu 1576-1772. Einnig eru birt embættisbréf og sendibréf sem tengjast málunum. Í fyrra bindi eru birt skjöl frá árunum 1546-1671 en í því síðara skjöl frá árunum 1672-1772. Már Jónsson bjó skjölin til útgáfu og ritar inngang.

Í kynningartexta bókarinnar segir að galdramál 17. aldar séu óhugnanlegur vitnisburður um refsihörku yfirvalda sem á sextíu ára bili létu brenna eina konu og tuttugu og einn karl á báli, fyrir utan aðrar aftökur sem voru miklu fleiri. Sum þessara mála sýni líka yfirvegaða fólsku einstaklinga sem vegna hræðslu eða haturs kærðu nágranna sína og kunningja fyrir galdra, vitandi vits að dauðadómur blasti við eða harkaleg hýðing sem gekk nærri lífinu. Veikindi á fólki og jafnvel dauði hafi verið helstu sakarefni en líka skepnumissir eða aflabrestur og önnur skemmdarverk. Hugarheimur þessara ára sé framandi og hafi lengi verið, því þegar í byrjun 18. aldar hafi menn séð að sér um ofsóknirnar og í framhaldinu hafi trú á galdra tekið að dvína.

Í spilaranum hér að neðan má hlýða á viðtal við Má Jónsson í Blöndu, hlaðvarpi Sögufélagsins.

Sögufélagið hefur gefið út Galdur og guðlast á 17. öld, tveggja binda verk eftir Má Jónsson, prófessor í sagnfræði við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands.