Skip to main content
22. júní 2018

Nærri 2.000 kandídatar brautskráðir frá Háskóla Íslands á morgun

Háskóli Íslands brautskráir nærri 2.000 kandídata úr grunn- og framhaldsnámi á morgun, laugardaginn 23. júní, í Laugardalshöll. Líkt og undanfarin ár verða brautskráningarathafnirnar tvær. 

Á athöfn sem hefst kl. 10.30 taka kandídatar í framhaldsnámi við útskriftarskírteinum sínum. Alls verða 745 kandídatar brautskráðir og taka við 748 prófskírteinum. Athöfnina sækja þeir sem eru að ljúka framhaldsnámi til prófgráðu, þ.e. meistaranámi og kandídatsnámi, þar á meðal fyrstu nemendurnir sem ljúka námi með MS-gráðu í hagnýtri sálfræði frá Sálfræðideild.

Brautskráning kandídata sem eru að ljúka grunnnámi, þ.e. BA-, B.Ed.- og BS-námi, fer fram á seinni athöfninni sem hefst kl. 14. Alls ljúka 1219 kandídatar námi á grunnstigi að þessu sinni og taka við 1222 prófskírteinum. Þeirra á meðal er fyrsti kandídatinn sem lýkur BS-prófi í stærðfræði og stærðfræðimenntun sem Verkfræði- og náttúruvísindasvið býður upp á í samstarfi við Menntavísindasvið.

Prófskírteini verða afhent í röð eftir fræðasviðum: Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið, Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið. Á Félagsvísindasviði verða samtals brautskráðir 607, 465 á Heilbrigðisvísindasviði, 265 á Hugvísindasviði, 340 á Menntavísindasviði og 287 á Verkfræði- og náttúruvísindasviði.

Samtals útskrifast því 1964 kandídatar frá Háskóla Íslands á morgun með 1970 prófskírteini.

437 kandídatar brautskráðust frá Háskóla Íslands í febrúar síðastliðnum og því nemur heildarfjöldi brautskráðra það sem af er ári 2.401.

 

Frá brautskráningu Háskóla Íslands