Skip to main content
5. september 2019

Máltækniáætlun stjórnvalda ýtt úr vör í Veröld

Almannarómur – Miðstöð um máltækni og aðilar að rannsóknarhópnum Samstarf um íslenska máltækni (SÍM) undirrituðu í gær samning um smíði innviða í máltækni fyrir íslensku í Vigdísarstofu í Veröld – húsi Vigdísar. 

Í SÍM eru níu fyrirtæki og stofnanir með sérþekkingu á sviði málvísinda og máltækni, en það eru Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Blindrafélagið, Ríkisútvarpið, Creditinfo Fjölmiðlavaktin ehf., Gammatek ehf., Miðeind ehf. og Tiro ehf. Ákveðið var að leita samninga við SÍM um að vinna að þeim rannsóknum sem felast í fyrsta áfanga máltækniáætlunar að undangenginni forkönnun Ríkiskaupa.

„Við hjá Háskóla Íslands fögnum þessum áfanga mjög. Stigið hefur verið gríðarlega miklvægt skref og má reyndar segja að um tímamót sé að ræða varðandi máltækni og íslensku. Það er frábært að háskólasamfélagið, atvinnulífið og stjórnvöld standi saman að þessu verkefni,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, sem undirritaði samninginn fyrir hönd Háskólans. 

Samningurinn, sem er til eins árs, tekur til fyrsta áfanga máltækniáætlunar þar sem megináhersla er lögð á söfnun og vinnslu gagna. Aðrir hlutar samningsins taka til smíði stoðtóla fyrir máltækni, vélrænna þýðinga, málrýni, smíði talgreinis og smíði talgervils. Hugbúnaður, sem verður þróaður sem hluti verkefnisins, verður aðgengilegur með opnum leyfum. Gögn, sem verða aðgengileg sem hluti verkefnisins, verða einnig háð opnum leyfum eins og framast er unnt. Í samningnum er tekið fram að SÍM muni leggja áherslu á frekara samstarf við atvinnulíf og rannsakendur á sviði máltækni, á Íslandi og á alþjóðavettvangi, í því skyni að hraða þróun máltæknilausna fyrir íslensku. Greiðslur fyrir rannsóknir og þróun á samningstímabilinu munu nema 383 milljónum króna.  

„Við hjá Háskóla Íslands fögnum þessum áfanga mjög. Stigið hefur verið gríðarlega miklvægt skref og má reyndar segja að um tímamót sé að ræða varðandi máltækni og íslensku. Það er frábært að háskólasamfélagið, atvinnulífið og stjórnvöld standi saman að þessu verkefni,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, sem undirritaði samninginn fyrir hönd Háskólans. MYND/Haraldur Guðjónsson

Snúa vörn í sókn fyrir tungumálið

„Við höfum ákveðið að snúa vörn í sókn fyrir tungumálið og þar er að mörgu að hyggja. Máltækniáætlunin og framkvæmd hennar eru meðal mikilvægustu skrefanna sem við stígum nú til að tryggja betur framtíð íslenskunnar,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

 „Sá tónn sem hér er sleginn í samstarfi háskólasamfélagsins og atvinnulífsins er mikilvægur upptaktur að nýsköpun í máltækni fyrir íslensku. Meginmarkmið máltækniáætlunar og þeirrar framkvæmdaáætlunar sem við höfum sett fram, er að þróa innviði fyrir máltækni sem verða gerðir aðgengilegir fyrirtækjum, stofnunum og almenningi endurgjaldslaust. Jafnframt leggjum við áherslu á að leyfiskeðja afurðanna verði skýr, þannig að það verði eftirsóknarvert fyrir fyrirtæki að nýta lausnirnar sem grunn að vörum og þjónustu fyrir íslenskan neytendamarkað,“ segir Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.

 „Aðilar innan SÍM hafa undanfarin ár unnið að grunnþróun í máltækni fyrir íslensku og byggt upp þekkingu á sviðinu. Með því að sameinast um þetta stóra verkefni nú, þvert á háskóla, stofnanir og fyrirtæki, verður lagður grunnur að öflugu „máltæknivistkerfi“ fyrir íslensku, þar sem gögn og kjarna-hugbúnaður verða aðgengileg á einum stað,“ segir Anna Björk Nikulásdóttir, verkefnastjóri SÍM.

Um Almannaróm – Miðstöð um máltækni
Almannarómur starfrækir miðstöð um máltækni á grundvelli samnings við Mennta- og menningarmálaráðuneytið en samkvæmt honum er Almannarómi m.a. falið að gera samninga við þá aðila sem falin verður framkvæmd einstakra þátta máltækniáætlunar, og að fylgja eftir framkvæmd þeirra.

Fulltrúar samningaðila glaðbeittir að lokinni undirritun í Veröld - húsi Vigdísar í gær. MYND/Haraldur Guðjónsson