Skip to main content
19. desember 2018

Lára Jóhannsdóttir í starf prófessors í umhverfis- og auðlindafræði

Dr. Lára Jóhannsdóttir hlaut nýverið framgang í starf prófessors í umhverfis- og auðlindafræði við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Rannsóknir Láru snúa aðallega að fyrirtækjum, sjálfbærni og samfélagslegri ábyrgð þeirra, sér í lagi hlutverki fjármálafyrirtækja á því sviði. Lára er fyrsta konan til að hljóta stöðu prófessors í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands er þverfræðileg námsbraut og nær þvert yfir öll fræðasvið Háskólans en er þó staðsett undir Verkfræði- og náttúruvísindasviði HÍ á meðan heimadeild prófessors Láru Jóhannsdóttur er Viðskiptafræðideild sem heyrir undir Félagsvísindasvið HÍ.

Lára brautskráðist árið 1992 með rekstrarfræðigráðu  frá Háskólanum á Bifröst og 2007 lauk Lára MBA námi í alþjóðlegri stjórnun (með láði) frá Thunderbird School of Global Management en námið fór fram í Tékklandi, Sviss, Rússlandi, Kína og Bandaríkjunum.

Lára lauk svo doktorsprófi frá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands árið 2012 en doktorsritgerð hennar fjallaði um áhuga og framlag norrænna skaðatryggingafélaga til lausna á umhverfislegum vandamálum. Lára var jafnframt fyrsta konan til að ljúka doktorsprófi frá Viðskiptafræðideild HÍ.

Lára hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu en hún starfaði um 14 ára skeið sem sérfræðingur og stjórnandi í vátryggingageiranum á Íslandi auk þess sem hún hefur setið í stjórn lífeyrissjóðs frá árinu 2011.
 
Á næstu misserum munu rannsóknir Láru snúa að sjálfbærum hagkerfum á norðurskautssvæðinu, þá sér í lagi tækifærum og áhættu sem tengist efnahagsþróun.

Lára var fyrr á þessu ári valin til þátttöku í Fulbright Arctic Initiative (FAI). FAI er flaggskip Fulbright-stofnunarinnar á sviði norðurskautsrannsókna. Lára var valin til þátttöku sameiginlega af stjórn Fulbright-stofnunarinnar á Íslandi og stjórn Fulbright í Bandaríkjunum. Hluti af FAI verkefninu felst í skiptidvöl við erlendan háskóla þar sem viðkomandi fræðimaður stundar sínar rannsóknir. Lára fór í skiptidvöl til Dartmouth College í Bandaríkjunum haustið 2018.

Frá vinstri: Sigurður M. Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, Lára Jóhannsdóttir og Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands
Lára Jóhannsdóttir ásamt fjölskyldu og vinum
Gestir á Innsetningarathöfn
Lára Jóhannsdóttir
Gestir á Innsetningarathöfn