Skip to main content
17. mars 2022

Háskóladagurinn á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði á næstunni 

Háskóladagurinn á Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði á næstunni  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskólar landsins verða með kynningar á öllu grunnnámi sínu á þremur stöðum á landsbyggðinni á næstu dögum en þar gefst öllum áhugasömum tækifæri til þess að ræða við stúdenta og starfsfólk um hvaðeina sem lýtur að draumanáminu og háskólalífinu. Fyrsti viðburðurinn verður á Akureyri í HA laugardaginn 19. mars kl. 12-15. 
 
Háskólar landsins hafa um árabil staðið sameiginlega fyrir Háskóladeginum í Reykjavík og jafnframt haldið námskynningar undir hatti Háskóladagsins á völdum stöðum úti á landi en undanfarin tvö ár hafa allar slíkar kynningar eingöngu verið á netinu vegna kórónuveirufaraldursins. Þar sem öllum samkomutakmörkunum hefur nú verið aflétt í landinu og til þess að gefa áhugasömum færi á milliliðalausu spjalli við fulltrúa háskólanna standa skólarnir sjö fyrir þremur viðburðum næstu vikuna. 
 
Laugardaginn 19. mars verður Háskóladagurinn á Akureyri haldinn í Háskólanum á Akureyri (HA) kl. 12-15. Nemendur, kennarar, náms- og starfsráðgjafar og starfsfólk allra háskóla landsins verða reiðubúnir að spjalla við gesti á deginum. 
 
Á staðnum verða einnig í boði í ýmis tæki og tól sem sýna vísindin í skemmtilegu og oft óvæntu ljósi Þannig geta gestir spreytt sig í LEGO-forritun, leiklistarsmiðju og mínískúlptúrasmiðju, tætt í sundur tölvur og sett aftur saman, þreytt þrekpróf lögreglumanna og fengið blóðþrýstingsmælingu. Sprengju-Kata verður enn fremur á svæðinu með sínar litríku efnafræðisýningar auk þess sem hægt er að kynna sér Snjallvagninn og fara í listabíó. 
 
Mánudaginn 21. mars verður Háskóladagurinn svo með kynningu í Menntaskólanum á Egilsstöðum kl. 10.30-12.30 en þar verða fulltrúar frá öllum háskólunum sjö. 
 
Fimmtudaginn 24. mars er svo komið að Vestfirðingum en þá verður kynning á vegum Háskóladagsins í Menntaskólanum á Ísafirði kl. 10.30 – 12.30. Sem fyrr eru öll áhugasöm velkomin á kynninguna.
 

Logo Háskóladagsins