Skip to main content
20. september 2022

Freysteinn hlýtur heiðursnafnbót hjá Sambandi bandarískra jarðvísindamanna

Freysteinn hlýtur heiðursnafnbót hjá Sambandi bandarískra jarðvísindamanna - á vefsíðu Háskóla Íslands

-    Heiðraður fyrir framúrskarandi framlag til jarðeðlisfræðinnar

Freysteinn Sigmundsson, vísindamaður við Jarðvísindastofnun Háskólans, hefur verið kjörinn heiðursfélagi hjá Sambandi bandarískra jarðvísindamanna (American Geophysical Union - AGU) fyrir rannsóknir sínar og framlag á sviði jarðeðlisfræði. Tilkynnt var um þetta í gær.

Freysteinn er í hópi rúmlega 50 vísindamanna sem hlotnast þessi heiður í ár en aðild að AGU eiga yfir 130 þúsund vísindamenn á sviði jarð- og geimvísinda. AGU stuðlar að framþróun jarð- og geimvísinda um allan heim með ýmsum hætti, m.a. með útgáfu tímarita, ráðstefnu- og fundahaldi og mikilvægum stuðningi við unga vísindamenn á umræddum sviðum. 

AGU hefur undanfarin 60 ár heiðrað framúrskarandi vísindamenn fyrir framlag þeirra til fræðanna. Minna en 0,1% félaga hlotnast þessi heiður árlega. Freysteinn er annar vísindamaðurinn á Íslandi sem hýtur þessa heiðursnafnbót (AGU fellow), en 20 ár eru síðan Leó Kristjánsson var heiðraður fyrir rannsóknir á segulsviði jarðar sem lesa má úr hraunlögum Íslands.

Í umsögn samtakanna segir að Freysteinn hafi orðið fyrir valinu vegna framúrskarandi árangurs á sínu rannsóknasviði, en hann fæst m.a. við rannsóknir á jarðskorpuhreyfingum og eldvirkni. „Rannsóknir Freysteins falla vel að framtíðarsýn AGU sem drifin er áfram af sjálfbærni og nýsköpun á sviði vísinda. Það er ekki síður mikilvægt að Freysteinn hefur sinnt störfum sínum af heilindum og virðingu í samstarfi við annað fólk og lagt sitt af mörkum til menntunar, fjölbreytileika og miðlunar innan fræðanna,“ segir einnig í umsögninni.

Afar afkastamikill vísindamaður

Freysteinn Sigmundsson lauk meistaraprófi í jarðeðlisfræði frá Háskóla Íslands 1990 og doktorsprófi í sömu grein frá Háskólanum í Colorado í Bandaríkjunum árið 1992. Að loknu námi hóf hann störf á Norrænu eldfjallastöðinni og var meðal annars forstöðumaður hennar þar til hún sameinaðist Háskóla Íslands árið 2004, þegar Jarðvísindastofnun Háskólans var stofnuð.

Freysteinn hefur í rannsóknum sínum lagt sérstaka áherslu á nákvæmnismælingar á hreyfingum jarðskorpunnar, bæði svokallaðar GPS-mælingar og einnig bylgjuvíxlmælingar úr ratsjárgervitunglum (InSAR) þar sem gervitunglamyndir eru nýttar til að varpa ljósi á þær breytingar sem verða á tilteknum landssvæðum, svo sem í aðdraganda eldgosa. Freysteinn hefur verið í fararbroddi íslenskra jarðvísindamanna um árabil og m.a. stýrt stórum alþjóðlegum rannsóknarverkefnum sem tengst hafa jarðhræringum og eldsumbrotum hér á landi. Hann er afar afkasamikill vísindamaður og í samvinnu við stóran hóp samstarfsaðila hefur hann birt yfir 150 greinar á sviði jarðvísinda. Sú nýjasta birtist í hinu virta tímariti Nature í síðustu viku og fjallar um samspil kvikuhreyfinga og spennulosunar í aðdraganda gossins í Fagradalsfjalli í fyrra. Þá hefur Freysteinn leiðbeint fjölda meistara- og doktorsnema í námi og verið óþreytandi við að varpa ljósi á jarðhræringar hér á landi í fjölmiðlum. 

Nánar um rannsóknir Freysteins á Vísindavefnum.

Athöfn til að fagna nýjum heiðursfélögum AGU verður á haustfundi samtakanna í Chicago í Bandaríkjunum um miðjan desember. 

Háskóli Íslands óskar Freysteini innilega til hamingju með viðurkenninguna.

Freysteinn Sigmundsson