Skip to main content
25. maí 2020

Alþjóðlegur jafnréttisskóli GRÓ brautskráir 20 kandídata

Tuttugu nemendur brautskráðust með diplóma á meistarastigi í alþjóðlegum jafnfréttisfræðum frá Alþjóðlegum jafnréttisskóla GRÓ (GRÓ-GEST) við Hugvísindasvið Háskóla Íslands á föstudaginn. Þetta er í fyrsta sinn sem brautskráð er frá skólanum eftir að hann varð hluti af Gró - Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu sem starfar undir merkjum Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO.

Jafnréttisskólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2009 og markmið hans er að veita sérfræðingum frá þróunarlöndum, átakasvæðum og fyrrverandi átakasvæðum þjálfun á sínu sérsviði og gera þeim betur kleift að vinna að jafnri stöðu karla og kvenna í heimalöndum sínum.

Í útskriftarhópnum í ár voru fulltrúar frá ellefu löndum: Afganistan, Úganda, Malaví, Mósambík, Gana, Nígeríu, Suður-Afríku, Palestínu, Srí Lanka, Rússlandi og Kamerún en um var að ræða fyrstu fulltrúa þriggja síðastnefndu landanna. Þau bætast í stóran og stöndugan hóp brautskráningarkandídata sem telur nú alls rúmlega 150 manns frá 25 löndum. 

Viðstödd útskriftarathöfnina, sem fram fór á Háskólatorgi, voru auk brautskráningarkandídata og kennara við skólann þau Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og verndari skólans, Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Guðmundur Hálfdanarson, forseti Hugvísindasviðs.

Námsmisseri útskriftarhópsins var harla óvenjulegt og þurftu nemendur ekki aðeins að aðlagast nýjum aðstæðum í nýju landi heldur einnig að takast á við áhrif COVID-19-faraldursins. Þar reyndi sannarlega á seiglu hópsins sem hélt góðu sambandi og sótti kennslustundir á netinu á meðan faraldurinn gekk yfir. Þegar Háskólinn var opnaður aftur í maí gafst kærkomið tækifæri fyrir hópinn til að hittast  og ljúka því verki sem lagt var upp með í upphafi annar. „Þið hafið ekki aðeins tekist á við krefjandi námsumhverfi heldur hafið þið sýnt mikla seiglu og styrk eins og útskrift ykkar í dag staðfestir,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í ræðu sinni við brautskráninguna. 

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, færði nemendunum innilegar hamingjuóskir frá Háskóla Íslands með áfangann og hvatti hópinn til góðra verka og að taka þeim áskorunum sem biðu þeirra með opnum örmum.  Allen Asiimwe flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og í ræðu sinni benti hún m.a. á að brautskráningin markaði nýtt upphaf fyrir hópinn sem nú myndi snúa til síns heima sterkari og ákveðnari í því að stuðla að breytingum í sínum nærsamfélögum. Irma Erlingsdóttir, forstöðumaður GRÓ-GEST, minnti á að það þarf mikinn kjark og baráttuhug til að leiða jafnréttisstarf og að starfsfólk skólans treysti útskriftarhópnum til að hafa áhrif með störfum sínum í framtíðinni.  

Tvö lokaverkefni fengu viðurkenningu

Hefð er fyrir því að veita verðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni á brautskráningunni og reyndist það þrautinni þyngra fyrir dómnefnd að velja á milli afar góðra verkefna. Í fyrsta sinn voru veitt verðlaun í tveimur flokkum, öðrum á sviði hagnýtra verkefna sem nýst geta til breytinga í heimalandi viðkomandi og hinum fyrir framúrarandi grein eða rannsókn sem felur í sér nýja þekkingu á sviði jafnréttisfræða eða getur orðið grunnur að doktorsverkefni.

Í fyrrnefnda flokknum hlaut Brenda Apeta frá Úganda verðlaun fyrir verkefni sem snýr að kynjasamþættingu í kennslu í Imvepi-flóttamannabúðunum í heimalandi hennar.  Þá hlaut Nadhiya Najab frá Srí Lanka verðlaun í síðarnefnda flokknum fyrir skarpa greiningu á smábönkum og kynjuðum félagslegum og efnahagslegum áhrifum vaxandi skuldsetningar í Srí Lanka. Verðlaunin eru kennd við Vigdísi Finnbogadóttur og það kom í hennar hlut að afhenda þeim Brendu Apeta og Nadhiya Najab viðurkenningu fyrri vel unnið verk. 

Við þetta má bæta að GRÓ-GEST heldur úti sínu eigin hlaðvarpi þar sem m.a. má finna viðtöl við nokkra af nemendum skólans. Það má nálgast hér. 

Háskóli Íslands óskar útskriftarnemum úr Alþjóðlega jafnréttisskólanum innilega til hamingju með áfangann. 

Fleiri myndir frá athöfninni

Útskriftarhópurinn ásamt kennurum, Vigdísi Finnbogadóttur, rektor og forseta Hugvísindasviðs.