Skip to main content
5. mars 2021

Aðilar menntakerfisins treysta samstarf sitt með nýrri Menntamiðju

Aðilar menntakerfisins treysta samstarf sitt með nýrri Menntamiðju - á vefsíðu Háskóla Íslands

Menntavísindasvið Háskóla Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Kennarasamband Íslands, skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykjavík, Listaháskóli Íslands, Menntamálastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa undirritað samstarfssamning um Menntamiðju, samráðsvettvangs um skóla- og frístundastarf og starfsþróun fagstétta í menntakerfinu. Samningurinn nær til þriggja ára og kveður á um aðkomu að rekstri Menntamiðju.  

Samstarfsgátt í skóla- og frístundastarfi 

Menntamiðja hefur verið starfrækt frá árinu 2012 og hefur þjónað sem samstarfsvettvangur stofnana og hópa innan skólasamfélagsins. Menntamiðja hefur verið umgjörð starfssamfélaga þar sem framsækin grasrótarverkefni blómstruðu, fjölbreytt torg urðu til og þekkingu var deilt. Á nýju vefsvæði Menntamiðju verður miðlað óformlegri starfsþróun sem sprettur upp úr grasrót faghópa í menntakerfinu og formlegri starfsþróun af hálfu eigenda Menntamiðju. Með óformlegri starfsþróun er átt við torg utan um ýmis viðfangsefni, menntabúðir, hópa á samfélagsmiðlum og fjölmenn og fámenn teymi kennara og fagfólks sem blómstra um land allt. Jafnframt er að finna á vefnum greinargott yfirlit yfir útgáfu og hlaðvörp sem geta nýst starfsfólki og yfirlit yfir styrktarsjóði.Menntamiðja verður enn fremur vettvangur til miðlunar á rannsóknum sem eiga erindi við menntakerfið og fyrir samstarf um þróunarstarf, nýsköpun og nýliðun kennara og annars starfsfólks. 

Starfsþróun til eflingar íslensku menntakerfi 

Burðarás Menntamiðju verður fjölbreytt úrval starfsþróunarnámskeiða sem sveitarfélög og háskólar landsins bjóða upp á. Á vef Menntamiðju verður miðlað stuttum og lengri námskeiðum, bæði örsmiðjum og einingabærum námskeiðum, á fjölbreyttum sviðum skóla- og frístundastarfs. Viðburðardagatal menntakerfisins miðlar upplýsingum til kennara og starfsfólks um það sem er efst á baugi enda eru ráðstefnur, menntabúðir og málþing snar þáttur í starfsþróun hvers og eins.  

Námskeið undir hatti Menntafléttunnar – námssamfélaga í skóla- og frístundastarfi verða kynnt á vef Menntamiðju, sjá nánar Starfsþróun í menntakerfinu elft með ríkulegu fjárframlagi 

„Með nýju samkomulagi um Menntamiðju er stigið mikilvægt skref í stóraukinni samvinnu háskólanna, stofnana og fagvettvangs.“

Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands

„Með nýju samkomulagi um Menntamiðju er stigið mikilvægt skref í stóraukinni samvinnu háskólanna, stofnana og fagvettvangs. Á undanförnum árum hafa orðið gríðarlegar breytingar á kennsluháttum og þeim verkfærum sem nýtt eru í skóla- og frístundastarfi. Þær breytingar snúa meðal annars að tækniþróun og nýtingu fjölbreyttra miðla í kennslu og námi en einnig að róttækum samfélagsbreytingum sem hafa áhrif á félags- og menningarlegan veruleika barna. Það er stórkostlegt að hafa nú enn öflugri gátt sem leiðir saman krafta fræðasamfélagsins og fagvettvangsins,“ segir Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra tekur í svipaðan streng. „Menntamiðja er táknræn fyrir það góða samstarf sem einkennir skólasamfélagið okkar og það er mikill fengur að því að dýrmætar upplýsingar, fróðleikur og miðlun eigi sér nú stað í gegnum einn samstarfsvettvang á vefnum.“

Menntamiðja verður hýst hjá Menntavísindastofnun Háskóla Íslands og er fyrirhugað að samstarfsaðilar skipi stýrihóp fyrir vettvanginn sem fundar reglulega. Samstarfsaðilar skipa jafnframt ritstjórn sem hittist mánaðarlega og tekur afstöðu um miðlun efnis á vef Menntamiðju. Áhersla er lögð á tengingu milli stofnana, skóla og fræðasamfélagsins með gagnkvæman ávinning allra aðila að leiðarljósi. 

Vefur Menntamiðju

Við undirritun samnings í Hátíðasal Háskóla Íslands. Frá vinstri: Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands, Karl Björnsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, Ragnar Þór Pétursson formaður Kennarasambands Íslands, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Ari Kristinn Jónsson rektor Háskólands í Reykjavík, Arnór Guðmundsson forstjóri Menntamálastofnunar, Kristín Valsdóttir forseti listkennsludeildar Listaháskóla Íslands og Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Re