Skip to main content

Heiðursdoktorsathöfn Hannesar Péturssonar og Steinunnar Sigurðardóttur

Heiðursdoktorsathöfn Hannesar Péturssonar og Steinunnar Sigurðardóttur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. maí 2022 14:00 til 15:30
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Skáldin Hannes Pétursson og Steinunn Sigurðardóttir verða sæmd heiðursdoktorsnafnbót frá Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands í Hátíðasal skólans mánudaginn 23. maí næstkomandi kl. 14:00–15:30. Við athöfnina verður fjallað um höfundana og lesið úr verkum þeirra. Enn fremur munu þær Bryndís Halla Gylfadóttir, sellóleikari, og Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópransöngkona, flytja tónlist við athöfnina. Allir eru velkomnir á athöfnina en auk þess verður hægt að fylgjast með henni í streymi með því að smella hér.

Hannes og Steinunn eru meðal okkar merkustu samtímahöfunda. Hannes er bæði ljóðskáld og fræðimaður. Hann kvaddi sér hljóðs með Kvæðabók árið 1955 og meðal annarra ljóðabóka á löngum og farsælum ferli Hannesar eru Stund og staðir (1962), Innlönd (1968), Heimkynni við sjó (1980), 36 ljóð (1983), Eldhylur (1993), Fyrir kvölddyrum (2006) og Haustaugu (2018). Náttúra og saga skipa mikilvægan sess í skáldskap Hannesar og honum hefur auðnast að samþætta hefð og nýjungar á skapandi hátt. Hannes lagði stund á germönsk fræði við háskólana í Köln og Heidelberg í Þýskalandi á árunum 1952–1954. Hann lauk kandídatsprófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands árið 1959 og hefur getið sér gott orð sem fræðimaður á því sviði. Í rannsóknum sínum hefur hann einkum fengist við ljóðskáld 19. aldar. Ljóð Hannesar hafa verið þýdd á ýmis mál og hann hefur sjálfur snúið erlendum ljóðum og lausamáli á íslensku.

Steinunn er ljóðskáld og höfundur skáldsagna og leikverka og teljast mörg verk hennar til lykilbóka í íslenskum samtímaskáldskap, m.a. Tímaþjófurinn (1986), Ástin fiskanna (1993) og Sólskinshestur (2005). Hún er jafnframt eitt af þekktustu ljóðskáldum samtímans en meðal ljóðabóka hennar má nefna Kartöfluprinsessuna (1987), Hugástir (1999) og Dimmumót (2019) en í síðastnefndu bókinni fjallar Steinunn um veruleika loftslagsbreytinga. Steinunn fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin 1995 fyrir skáldsöguna Hjartastað, Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna árið 2016 fyrir Heiðu – fjalldalabóndann, og ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvarssonar árið 2017. Auk þess hlaut hún Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2014 fyrir störf sín í þágu íslensks máls en í rökstuðningi dómnefndar segir: „Fegurð íslenskrar náttúru er yfir og allt um kring í ljóðheimi Steinunnar og því fer afar vel á því að hún hljóti verðlaun kennd við Jónas Hallgrímsson skáld og náttúrufræðing.“ Steinunn hefur jafnframt kennt ritlist við Háskólann í Strassborg og Háskóla Íslands.

Skáldin Hannes Pétursson og Steinunn Sigurðardóttir verða sæmd heiðursdoktorsnafnbót frá Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands í Hátíðasal skólans mánudaginn 23. maí næstkomandi.

Heiðursdoktorsathöfn Hannesar Péturssonar og Steinunnar Sigurðardóttur