Fjarkynning á framhaldsnámi við Sagnfræði- og heimspekideild
Hvenær
22. apríl 2020 9:00 til 11:30
Hvar
Nánar
Aðgangur ókeypis
Framhaldsnámsleiðir við Sagnfræði- og heimspekideild verða kynntar í streymi miðvikudaginn 22. apríl kl. 9:00-11:30. Umsóknarfrestur um framhaldsnám við Háskóla Íslands hefur verið framlengdur til 20. maí (sjá umsóknarsíðu hi.is).
Á fjarkynningunum verða veittar upplýsingar um samsetningu hverrar námsleiðar, inntökuskilyrði, fyrirkomulag lokaverkefna, atvinnumöguleika og margt fleira. Þá verður hægt að senda inn spurningar í netspjalli um leið og kynningin fer fram.
Dagskrá námskynningar Sagnfræði- og heimspekideildar 22. apríl:
- 9:00 Fornleifafræði / Fjarkynning
- 9:20 Heimspeki / Fjarkynning
- 9:40 Sagnfræði / Fjarkynning
- 10:00 Hagnýt menningarmiðlun / Fjarkynning
- 10:20 Hagnýt siðfræði / Fjarkynning
- 10:40 Hugmynda- og vísindasaga / Fjarkynning
- 11:00 Hagnýt skjalfræði / Fjarkynning