Skip to main content

Nýnemadagar

Nýnemadagar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. september 2018 10:00 til 14:00
Hvar 

Háskólatorg

Nánar 
Öll velkomin

Nýnemadagar verða haldnir dagana 3. - 7. september. Boðið verður upp á glæsilega dagskrá þar sem skemmtun, fróðleikur og fjör ræður ríkjum.

Mánudaginn 3. september á milli klukkan 11:30 og 13:00 kynnir Háskóli Íslands ýmsa þjónustu sem nemendum stendur til boða á Háskólatorgi.  Nemendur geta til að mynda hitt starfsfólk frá Náms- og starfsráðgjöf, Skrifstofu alþjóðasamskipaNemendaskráTungumálamiðstöðLandsbókasafni og sérfræðing í Smáuglunni – appi Háskóla Íslands. Á staðnum verða líka fulltrúar frá StúdentaráðiRitveriHáskólakórnum og Háskóladansinum. Þarna má einnig ná tali af Jafnréttisfulltrúafagráði HÍjafnréttisnefnd SHÍQ félagi hinsegin stúdenta og femínistafélagi HÍ

Stúdentaráð býður nýnemum í gönguferð um Háskólasvæðið kl. 12.30. Lagt af stað frá upplýsingaborði fyrir nýnema á Háskólatorgi.

Upplýsingaborð fyrir nýnema verður opið á Háskólatorgi alla vikuna frá kl. 10 - 14. Þar má fá svör við hinum ýmsu spurningum er varða námið, skólann, staðsetningar, félagslífið, þjónustu og margt fleira.

Nýnemar geta einnig tekið þátt í spurningaleik fyrir nýnema í Uglunni þar sem glæsilegir vinningar eru í boði. 

Bendum nýnemum á Nýnemavefinn sem er stútfullur af ítarlegum upplýsingum um háskólasamfélagið, fyrstu skrefin í HÍ og þjónustu, einnig leiðbeiningar fyrir nýnema, fróðleikur og margt fleira.

Samfélagsmiðlar

Endilega fylgist með snapchat Háskóla Íslands undir „haskolasnappid

Einnig má fylgjast með Háskólanum á FacebookTwitterInstagram og YouTube.

Mánudaginn 3. september á milli klukkan 11:30 og 13:00 kynnir Háskóli Íslands ýmsa þjónustu sem nemendum stendur til boða.

Nýnemadagar