Skip to main content

Háskóladagurinn 2020

Háskóladagurinn 2020 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
29. febrúar 2020 12:00 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging, Háskólatorg, Askja og Háskólabíó

Nánar 
Aðgangur ókeypis
Öll velkomin

Háskóli Íslands býður landsmönnum öllum í heimsókn á Háskóladaginn laugardaginn 29. febrúar 2020 milli klukkan 12 og 16. Í boði verða ótal viðburðir, kynningar og uppákomur sem sýna vísindi og nýsköpun í litríku og lifandi ljósi. Kjörið tækifæri til að koma og fræðast, upplifa og skemmta sér. Ekki missa af því þegar Háskólinn opnar dyr sínar upp á gátt.

400 námsleiðir í boði

Allir geta kynnt sér fjölbreytt námsframboð Háskóla Íslands en yfir 400 námsleiðir í grunn- og framhaldsnámi eru í boði við skólann. Komið og kynnið ykkur spennandi nám sem opnar leiðina út í atvinnulífið. Einnig fer fram kynning á margþættri og öflugri starfsemi og þjónustu Háskólans. Gestir geta skoðað rannsóknastofur, tæki, búnað og húsakynni.

Á staðnum verða vísindamenn, kennarar og nemendur úr öllum deildum Háskólans sem svara spurningum um allt milli himins og jarðar – eða því sem næst.

Allar námsleiðir kynntar á háskólasvæðinu   Hér má sjá hvar allar námsleiðir eru kynntar á Háskóladaginn

Námskynningar á vegum einstakra fræðasviða Háskóla Íslands verða á eftirtöldum stöðum:

Fjör og fræði í einum fremsta háskóla heims

Dagskráin í Háskóla Íslands er mjög fjölskrúðug eins og alltaf. Þú getur lært kínverskar taichi bardagalistir og mun kennarinn, Peng Qing, einnig sýna áhorfendum listir sínar. Háskólakórinn brýnir raust sína í Aðalbyggingu og er hljómurinn undir silfurbergshvelfingunni í anddyrinu alveg einstakur. Nemendur í tónmennt verða með spunatónverk á skólahljóðfæri og boðið verður upp á gönguferð á Stúdentagarða þar sem hægt verður að skoða aðstöðu stúdenta í Mýrargarði á milli kl. 14-16. Hægt verður að skoða fornleifar, skrifa nafnið sitt á Japönsku og taka þátt í ljóðagjörningi.  Í Öskju verður hægt að gæða sér að grilluðum pylsum, sjá rafknúinn kappakstursbíl Team Spark og fylgjast með hönnunarkeppni byggingarverkfræðinema svo eitthvað sé nefnt. Skoða dagskrá Háskóladagsins.   

Vísindahvísl í Odda

Fróðleg örerindi verða flutt á Vísindahvísli í Odda á Háskóladaginn. Þar verður til dæmis hægt að hlýða á erindi um jarðhræringarnar á Reykjanesi, falsfréttir, hryðjuverkaógn á Íslandi, hvernig hægt sé að styðja fólk í foreldrahlutverkinu, efnafræðina í eldhúsinu, hvort tilviljun ráði námsvali og margt fleira. Skoðaðu dagskrána hér.

Vísindasmiðjan í Háskólabíói opin milli kl. 13 og 15

Á Háskóladaginn verður opið í Vísindasmiðju Háskóla Íslands, en þar er allri fjölskyldunni boðið að upplifa vísindin með lifandi hætti, uppgötva og leika sér af hjartans lyst.  Þar eru tæki, tól, tilraunir, þrautir og óvæntar uppgötvanir fyrir alla aldurshópa. 

Í Vísindasmiðjunni kynnist þú undraverðum eiginleikum ljóss, lita, hljóðs og rafmagns, teiknar listaverk með rólu, leikur á syngjandi skál, skoðar tungl, stjörnur og loftsteina og ótalmargt fleira.
Viltu læra að snúast eins og skautadrottning? Ertu með kalt nef og heitar hendur? Hitamyndavélin varpar óvæntu ljósi á þinn innri mann og sýnir þínar svölustu hliðar. Mótaðu fjöll, höf og eyjar í landslagssandinum og kynntu þér leyndardóma myrkraherbergisins. Allt þetta og talsvert meira upplifir þú í Vísindasmiðju HÍ.

Stjörnu-Sævar mætir með alvöru "geimsteina" frá tunglinu og Mars og Sprengju-Kata gerir litríkar og hljómmiklar tilraunir.  Ekki missa af Sævar og Kötu
Velkomin í Vísindasmiðju Háskóla Íslands

Spennandi dagskrá

Dagskráin er ætíð mjög fjölskrúðug og aðgangur er ókeypis á alla viðburði í opnu húsi Háskóla Íslands.

Í Háskóla Íslands verða einnig Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri með námskynningu á 1. hæð Háskólatorgs. Endurmenntun Háskóla Íslands og Háskólinn á Bifröst verða þar einnig ásamt Keili sem kynnir sína landsþekktu háskólabrú. 

Á 2. hæð á Háskólatorgi eru einnig fulltrúar frá Náms- og starfsráðgjöf og Skrifstofu alþjóðasamskipta. Á staðnum verða fulltrúar frá jafnréttisnefnd Háskóla Íslands, Q félagi hinsegin stúdenta og Femínistafélagi HÍ . Þá veita fulltrúar Félagsstofnunar stúdenta upplýsingar um Stúdentagarða, Leikskóla stúdenta og aðra þjónustu fyrir stúdenta. Þá verður opið hús í Mýrargarði fyrir gesti og gangandi milli kl. 14-16 þar sem sýnd verða herbergi og sameiginleg aðstaða á Stúdentagörðum. Þeir sem vilja fá fylgd eru hvattir til að skella sér með í gönguferð á Stúdentagarða frá Háskólatorgi kl. 14.00.  

Háskólinn í Reykjavík er með námskynningu í eigin húsakynnum við Öskjuhlíð og Listaháskóli Íslands kynnir sínar námsleiðir í eigin húsakynnum á Laugarnesvegi.

Boðið er upp á ókeypis strætóferðir á milli skóla.

Frekari upplýsingar um Háskóladaginn eru á vef Háskóladagsins.

Háskóladagurinn 2020 Fjölbreytt námsframboð Háskóla Íslands kynnt á háskólasvæðinu 29. febrúar 2020.

Háskóladagurinn 2020