Skip to main content

Brautskráning frá Háskóla Íslands

Brautskráning frá Háskóla Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. júní 2020 10:00 til 16:00
Hvar 

Laugardalshöll

Nánar 
Bein útsending verður frá báðum athöfnum

Brautskráning Háskóla Íslands fer fram í Laugardalshöll laugardaginn 27. júní 2020. 

Brautskráningunni verður skipt í tvær athafnir.

Á fyrri brautskráningarathöfninni, sem hefst kl. 10, fá kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Heilbrigðisvísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði útskriftarskírteini sín.

Seinni athöfnina, sem hefst kl. 13.30, sækja kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Félagsvísindasviði, Hugvísindasviði og Menntavísindasviði.

Engir gestir verða viðstaddir athafnirnar, en beint streymi verður fyrir aðstandendur kandídata.

Kandídatar fá send rafræn bréf með nánari upplýsingum þegar nær dregur brautskráningu.

Brautskráning Háskóla Íslands fer fram í Laugardalshöll laugardaginn 27. júní 2020. Brautskráningunni verður skipt í tvær athafnir. Beint streymi: https://www.hi.is/frettir/yfir_2000_kandidatar_brautskradir_fra_haskola_...

Brautskráning