Skip to main content

Er loðnan að hverfa?

Björn Birnir, gestaprófessor við Háskóla Íslands og prófessor við Kaliforníuháskóla í Santa Barbara

„Í upphafi þessarar aldar fór að bera á breytingum á loðnugöngum. Á haustin færðust torfurnar nær Grænlandi og fæðugangan færðist af vestanverðu Íslandshafi nær Grænlandi. Fræðimenn grunaði að þessar breytingar mætti rekja til hlýnunar sjávar. Hafrannsóknastofnun fylgdist með breytingunum með mælingum en líkön vantaði og aðferðir til að spá til hvers þessar breytingar gætu leitt.“

Þetta segir Björn Birnir, prófessor við Háskóla Íslands og við Háskólann í Kaliforníu í Santa Barbara. Björn og samstarfsmenn hafa vakið feiknarathygli fyrir rannsóknir sínar á göngumynstri uppsjávarfiska í Norður-Íshafi og kringum Ísland og hvaða hlutverki göngurnar gegna í lífríki sjávar. Rannsóknirnar þykja hafa sýnt fram á áhrif loftslagsbreytinga á loðnuna, einn mikilvægasta fiskinn í lífríki sjávar hér við land.

„Loðnan er eins og margir vita undirstöðufiskur í fæðukeðju bolfisks við Ísland, en hún er yfir þriðjungur af fæðu botnfiska stóran hluta ársins. Hún er auk þess veidd vegna hrogna og mjöls,“ segir Björn sem hefur þróað reiknilíkön með samstarfsteymi sínu fyrir loðnu, síld og makríl sem taka sjávarstrauma og sjávarhita með í reikninginn og spá fyrir um göngumynstur og hegðun þessara tegunda.

Björn segir að líkanið megni að reikna hrygningargöngurnar með hjálp hita- og straummælinga frá gervihnöttum. „Reikningarnir byggja líka á mælingum á upphafsdreifingu torfanna áður en gangan fer af stað. Þar af leiðandi er mikilvægt að samspil sé á milli mælinganna og reikninganna og það verður ekki ef mælingar fara ekki fram eins og gerðist því miður árið 2015 vegna fjárskorts. Því er erfitt að komast að því hvað nákvæmlega gerðist þá.“

Björn Birnir

„Við viljum skilja til fullnustu bæði fæðu- og hrygningargöngu loðnunnar í höfunum fyrir norðan og kringum Ísland.“

Björn Birnir

Björn segir að loðnan geti breytt hitaþoli sínu meira en aðrar tegundir og komist því í kaldari sjó. „Hún myndar gríðarlega stórar torfur, hrygningargangan getur talið tíu milljarða fiska og fer langt norður í Íshafið, norður fyrir Jan Mayen í fæðugöngu sinni á sumrin. Þar nærist hún á dýrasvifi sem hefur orðið til vegna blómgunar plöntusvifsins á sumrin. Loðnan þrefaldast þar að stærð og þyngd og flytur hinn gríðarlega lífmassa suður til hafsvæðanna í kringum Ísland í haustbyrjun. Hún er eini fiskurinn sem getur flutt allan lífmassann þessa vegalengd og myndar því eina af undirstöðum íslenskra fiskveiða.“

„Það er auðvitað mjög alvarlegt mál ef loðnan hættir að hrygna við Ísland og það yrðu alvarleg tíðindi fyrir íslenskt hagkerfi. Við verðum að vona að veitt verði meira fé til þessara rannsókna í framtíðinni.“

Spáir loðnan bráðnun Grænlandsjökuls?

Björn Birnir segir að vísindamenn vilji skilja og reikna allan lífsferil loðnunnar sem sé ein mikilvægasta fisktegundin fyrir hagkerfi okkar.

„Við viljum skilja til fullnustu bæði fæðu- og hrygningargöngu loðnunnar í höfunum fyrir norðan og kringum Ísland. Þótt margt sé enn óljóst varðandi þetta ferli og sviptingar í hita sjávar,“ segir Björn, „þá getum við nú samt áttað okkur á hvaða áhrif loftslagsbreytingar í hafinu við landið hafa á fiskistofna sem við veiðum og raunar á lífríkið allt.“

Björn segir að vísindamenn geti ef til vill notað þessar sviptingar í umhverfi okkar til að reikna hraða loftslagsbreytinganna og hvenær búast megi við bráðnun Grænlandsjökuls og suðurhvelsíssins. „Það er mögulega hægt að leggja saman mælingar á hitastigi í hafdjúpinu á milli Íslands og Grænlands og útreikninga á því hvar loðnan heldur kyrru fyrir meðan hún er að verða fullþroska. Þessi staður hefur verið að færast í norðvestur og hraðinn getur sagt okkur til um hraða hlýnunar sjávar í Norðurhöfum. Þetta er spurning sem allur heimurinn leitar svars við.“