Skip to main content

Kynningarfundur fyrir nýnema á Hugvísindasviði

Kynningarfundur fyrir nýnema á Hugvísindasviði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. ágúst 2023 13:00 til 14:00
Hvar 

Háskólatorg

Stofa 105

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hugvísindasvið Háskóla Íslands býður nýnemum á kynningarfund í stofu 105 á Háskólatorgi, föstudaginn 18. ágúst kl. 13:00. Smellið hér til að fylgjast með streymi frá fundinum.

Dagskrá:

  • Ávarp Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands.
  • Kynning á Hugvísindasviði. Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs.
  • Kynning á Uglu – innri vef HÍ.
  • Kynning á félagsstarfi nemenda.

Að fundinum loknum verða kynningarfundir í deildum og hefjast þeir kl. 14:00. Þar verður greint frá námstilhögun og veittar nánari upplýsingar um nám og félagsstarf í viðkomandi deildum:

  • Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði í stofu 104 á Háskólatorgi.
  • Íslensku- og menningardeild í Árnagarði, stofu 201. (Fundurinn verður hálftíma langur og honum lýkur með kynnisferð um háskólasvæðið og Eddu, nýtt hús íslenskunnar). 
  • Mála- og menningardeild í stofu 105 á Háskólatorgi.

Guðfræði- og trúarbragðafræðideild heldur sinn kynningarfund í stofu 229 í Aðalbyggingu, mánudaginn 21. ágúst kl. 12:00-13:00. 

Kennsla hefst mánudaginn 21. ágúst. Nýnemadagar Háskóla Íslands hefjast 4. september.

Á nýnemavef Háskóla Íslandsvef Stúdentaráðs og á vef Hugvísindasviðs eru gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema um námið og skólann, þar á meðal stundaskrár. Eins er hægt að fá innsýn í starfið á  facebooksíðum skólans og sviðsins og á Instagram síðum sviðs og skóla.

Ef einhverjar spurningar vakna um námið er hægt að hafa samband við starfsfólk á skrifstofu í síma 525 4400, senda okkur tölvupóst á netfangið hug@hi.is eða koma við á skrifstofu sviðsins í Aðalbyggingu (3. hæð); hún er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga.