Skip to main content

GPMLS Fyrirlestur - "Starfsferill sem ritstjóri, spurningar&svör" - Dr. Scott Behie

GPMLS Fyrirlestur - "Starfsferill sem ritstjóri, spurningar&svör" - Dr. Scott Behie  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. desember 2022 11:00 til 12:00
Hvar 

Læknagarður

Stofa 201

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Dr. Scott Behie, ritstjóri hjá Cell, mun halda fyrirlestur um starfsferil sinn sem ristjóri og svara spurningum varðandi starfið, reynslu sína af akademíu og gefa góð ráð til ungra vísindamanna. Ritrýnda tímaritið Cell er eitt það virtasta í heimi lífvísinda með áhrifaþátt (e. impact factor) upp á 66.85 fyrir árið 2021.

Scott lauk doktorsprófi frá Brock Háskóla þar sem hann lagði stund á örveruvistfræði, næringarefnaflutning í samskiptum plantna og örvera ásamt örveruefnafræði. Hann vann síðar að nýdoktorverkefni við UC Berkeley þar sem hann beitti víðtækum bakgrunni sínum í örverufræði til að rannsaka samsetningu og efnafræði náttúrulegra örverumengja (e. microbiome) til uppgötvunar á lífvirkum smásameindum. Scott hefur gaman af þverfaglegum rannsóknum og nýtur þess að sameina mismunandi svið við rannsóknir eins og vistfræði, sameindalíffræði, örverufræði og líftækni. Hann hefur brennandi áhuga á vísindamiðlun og vinnur beint með höfundum rannsókna í ritstjórnarferlinu.

Upplýsingar frá vef Cell (https://www.cell.com/cell/editors-and-staff)

Dr. Scott Behie

GPMLS Fyrirlestur - "Starfsferill sem ritstjóri, spurningar&svör" - Dr. Scott Behie