Skip to main content

För kínversks námsmanns um Ísland, brúarsmíði menningarheima og atvinnugreina

För kínversks námsmanns um Ísland, brúarsmíði menningarheima og atvinnugreina - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. mars 2024 17:30 til 18:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Stofa 007

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Tingting Zheng flytur fyrirlestur á vegum Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljós og Kínversk-íslenska menningarfélagsins sem hún nefnir „Jarðhitaævintýri: af för kínversks námsmanns um Ísland, brúarsmíði menningarheima og atvinnugreina.“ 

Fyrirlesturinn fer fram á ensku í stofu 007 í Veröld - húsi Vigdísar, fimmtudag 21. mars og hefst kl.17:30. Boðið verður upp á léttar veitingar og hvatt til umræðna. Verið öll velkomin.

Tingting Zheng er doktorsnemi í jarðvísindum við Háskóla Íslands sem meðlimur í GRÓ-jarðhitaþjálfun UNESCO. Hún er með B.Sc. gráðu í vatnafræði og auðlindaverkfræði og M.Sc. gráðu í grunnvatnsvísindum og verkfræði frá China University of Geosciences. Tingting starfar nú sem jarðhitalónsverkfræðingur í hlutastarfi hjá Arctic Green Energy, alþjóðlegu fyrirtæki á sviði endurnýjanlegrar orku. Auk þess er hún meðstofnandi Iceland Academy ehf., sem sérhæfir sig í að veita upplýsingar um innritun í íslenska háskóla og bjóða kínverskum nemum til náms á Íslandi.

Tingting Zheng.

För kínversks námsmanns um Ísland, brúarsmíði menningarheima og atvinnugreina