Skip to main content

Annars hugar: Helen Cova

Annars hugar: Helen Cova - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. mars 2024 16:00 til 17:00
Hvar 

Edda

Fyrirlestrasal

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þriðjudaginn 26. mars kl. 16:00–17:00 verður fluttur annar fyrirlesturinn af þremur í fyrirlestraröðinni „Annars hugar“ í fyrirlestrasal Eddu. Fyrirlestraröðin er á vegum námsgreinarinnar Íslenska sem annað mál, í samstarfi við Árnastofnun og Málvísindastofnun. Fyrirlesararnir eru rithöfundar og skáld og skrifa á íslensku sem þau hafa lært sem annað mál. Í fyrirlestrunum segja þau frá sjálfum sér og lesa upp úr verkum sínum.

Fyrirlesari að þessu sinni er Helen Cova, venesúelsk-íslenskur þverfaglegur rithöfundur. Meðal verka hennar eru barnabækur, ljóð, ritgerðir og smásögur. Bækur hennar hafa komið út á nokkrum tungumálum, þar á meðal íslensku, ensku, spænsku og persnesku. Verk Helenar hafa einnig verið birt í tímaritum, svo sem á Íslandi, auk þess að hafa verið valin í alþjóðleg verkefni eins og Lunar Codex og Ordskælv. Helen er núverandi forseti Ós Pressunnar og stofnandi og forstjóri forlagsins Karíba. Hún leggur áherslu á notkun tungumála sinna sem tæki til sköpunar án aðgreiningar.

Léttar veitingar og spjall að erindi loknu.

Helen Cova.

Annars hugar: Helen Cova