Skip to main content

Alþjóðadagar 22.-26. október

Alþjóðadagar 22.-26. október - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
22. október 2018 12:30 til 26. október 2018 23:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Á Alþjóðadögum sem standa yfir dagana 22.-26. október verður boðið upp á spennandi fyrirlestra, kynningar á möguleikum á námi erlendis, bíósýningar, tónlist, dans og margt fleira. Markmið Alþjóðadaga er að vekja athygli á alþjóðlegu samstarfi Háskólans og þeim fjölmörgu tækifærum sem standa nemendum og starfsfólki til boða um allan heim. Kynningar á skiptinámi, sumarnámi og starfsþjálfun verða í gangi alla vikuna bæði fyrir einstök fræðasvið eða deildir en einnig kynningar sem verða opnar öllum. Upplýsingastofa um nám erlendis verður með erindi um nám erlendis á eigin vegum og möguleikar á Erasmus+ ferða- og dvalarstyrkjum fyrir starfsfólk verða kynntir. Föstudaginn 26. október geta nemendur kynnt sér háskólanám í Svíþjóð en sænskir háskólar verða með kynningu á Litla torgi frá kl. 12 til 16.


Alþjóðatorgið

Fimmtudaginn 25. október er svo komið að hápunkti Alþjóðadaga á Háskólatorgi milli kl. 11.30-13.30. Þar gefst nemendum kostur á að kynna sér skiptinám, starfsþjálfun og sumarnám, auk náms á eigin vegum. Fyrrum og núverandi skiptinemar, fulltrúar frá sendiráðum og fjölmörgum íslenskum stofnunum og félögum verða til viðtals á torginu. Svið og deildir háskólans og starfsfólk Skrifstofu alþjóðasamskipta verða einnig á staðnum og veita upplýsingar um námsdvöl erlendis. Starfsfólk háskólans getur kynnt sér möguleika á kennara- og starfsmannaskiptum og öðrum kostum sem bjóðast innan Erasmus+.

Sem fyrr verður lífgað upp á stemninguna með tónlist og dansatriðum. Dansarar úr Kramhúsinu sýna Afródans, Bjössi Sax spilar og Rósana stígur magadans. Happdrættið verður á sínum stað þar sem nemendur eiga m.a. möguleika á að vinna flugmiða til landa í Evrópu  auk þess sem boðið verður upp á alþjóðlegt matar- og drykkjasmakk.

Dagskrá Alþjóðadaga

22. október
12.30  Kynning á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi  fyrir nemendur Verkfræði- og náttúruvísindasviðs
VRII-261

12.30 Kynning á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi fyrir nemendur Menntavísindasviðs
Stakkahlíð H-202

13.20 Kynning á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi fyrir nemendur Stjórnmálafræðideildar
Gimli-102

14.00 Bíósýning - The Lobster
Stúdentakjallarinn

23. október
12.30 Kynning á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi  fyrir nemendur Hugvísindasviðs
Háskólatorg HT-104

13.15 Kynning á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi fyrir nemendur Lagadeildar
Lögberg L-101

15.00  Kynning á námi erlendis á eigin vegum
Upplýsingastofa um nám erlendis
Háskólatorg HT-104

24. október
12.30 Stefnumót við fyrrverandi skiptinema 
Stúdentakjallarinn

13.20 Kynning á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi fyrir nemendur Félagsfræði-, mannfræði og þjóðfræðideildar og Félagsráðgjafardeildar
Gimli-102

14.00 Erasmus+ ferða- og dvalarstyrkir fyrir starfsfólk HÍ
Háskólatorg - HT-300

16.00 Bíósýning - The Train to Busan
Stúdentakjallarinn

25. október
11.30-13.30 Alþjóðatorgið
Afró, Bjössi Sax, Rósana magadansmær, happdrætti, alþjóðlegt matar- og drykkjarsmakk og margt fleira
Háskólatorg

14.00 Kynning á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi fyrir nemendur Viðskiptafræðideildar og Hagfræðideildar
Gimli-102

15.00 Exchange Studies and Traineeships Abroad - A presentation in English
Oddi-101

26. október
12.00 Kynning á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi fyrir nemendur Heilbrigðisvísindasviðs
Læknagarður LG-343 

12.00-16.00 Study in Sweden – Sex sænskir háskólar kynna nám 
Litla torg

14.15-14.55 Opin kynning á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi 
HT-300

21.30 Lokapartý Alþjóðadaga - SAKANA dj-sett
Stúdentakjallarinn

Allir velkomnir.

Markmið Alþjóðadaga er að vekja athygli á alþjóðlegu samstarfi Háskólans og þeim fjölmörgu tækifærum sem standa nemendum og starfsfólki til boða um allan heim.

Alþjóðadagar 22.-26. október