Skip to main content

Erasmus+ ferða- og dvalarstyrkir fyrir starfsfólk HÍ

Erasmus+ ferða- og dvalarstyrkir fyrir starfsfólk HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. október 2018 14:00 til 15:00
Hvar 

Háskólatorg

300

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Miðvikudaginn 24. október kl. 14.00 verða möguleikar á Erasmus+ styrkjum til kennara- og starfsmannaskipta kynntir í stofu 300 á Háskólatorgi.

Farið verður yfir skilyrði fyrir styrk, umsóknarferlið og spurningum svarað.

Einnig verða möguleikar í Erasmus+ kennara- og starfsmannaskiptum utan Evrópu kynntir.

Þá verður fjallað um þann möguleika deilda HÍ að bjóða til sín fulltrúum fyrirtækja, stofnana eða félagasamtaka í öðrum þátttökulöndum Erasmus+ til að sinna gestakennslu.

Eftir kynninguna verða fulltrúar Skrifstofu alþjóðasamskipta áfram á staðnum ef einhverjir vilja frekari upplýsingar eða ráðgjöf.

Erasmus+ styrkir til kennara- og starfsmannaskipta innan Evrópu https://www.hi.is/nam/erasmus_styrkir_innan_evropu 

Erasmus+ kennara- og starfsmannaskipti utan Evrópu https://www.hi.is/nam/erasmus_styrkir_utan_evropu 

Kynningin verður á íslensku.

Fjölmargir starfsmenn hafa nýtt sér Erasmus+ ferða- og dvalarstyrki síðustu ár.

Erasmus+ ferða- og dvalarstyrkir fyrir starfsfólk HÍ