Nám í Svíþjóð - sex háskólar á Litla torgi
Háskólatorg
Litla torg
Fulltrúar frá Chalmers University of Technology, Göteborgs Universitet, Lunds Universitet, Linné Universitet, Umeå Universitet og Jönköpings Universitet kynna skólana og nám í boði frá kl. 12 til 16 á Litla torgi.
Svíþjóð er með næstflesta háskóla í heiminum sem teljast til „top ranking“ háskóla og eina landið af Norðurlöndunum með skóla á topp 100 í QS World University Rankings. Svíþjóð er leiðandi í tækni-sprotafyrirtækjum og er Stokkhólmur sprota-höfuðborg Evrópu (bara Silicon Valley er með fleiri sprotafyrirtæki). Hvergi annars staðar í heiminum finnast fleiri fjölþjóðleg fyrirtæki miðað við höfðatölu. Grunnurinn að þessu liggur í sænsku menntakerfi sem er framúrskarandi í því að kenna nemendum sínum skapandi hugsun og hvernig þeir geta komið fram með nýjar hugmyndir.
Sænski tónlistarmaðurinn Kristian Anttila tekur lagið en hann verður með tónleika um kvöldið í Norræna húsinu. Ókeypis er á tónleikana - sjá http://nordichouse.is/en/event/tonleikar-kristian-antilla/
Verið velkomin!