Skip to main content

70 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna

70 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
10. desember 2018 9:00 til 11:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í tilefni af 70 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna standa samræðuvettvangur um mannréttindi og stýrihópur Stjórnarráðsins um mannréttindi að hátíðarfundi í Veröld - húsi Vigdísar, mánudaginn 10. desember frá kl. 09:00 - 11:00.

Mannréttindayfirlýsingin hefur verið og er enn mikilvægt tæki í baráttunni fyrir mannréttindum en hún er undistaða helstu alþjóðasamninga um mannréttindi. Mannréttindayfirlýsingin tilheyrir okkur öllum og það er mikilvægt að standa vörð um þann áfanga sem náðst hefur og styrkja og halda áfram að stuðla enn frekar að virðingu fyrir mannréttindum.

Komdu og taktu þátt í umræðunni með okkur!

Dagskrá

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, býður gesti velkomna

9:00 - 9:10    Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, flytur opnunarávarp

9:10 - 9:30   Mannréttindayfirlýsingin – Undirstaða mannréttindaverndar í heiminum,

Björg Thorarensen, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands

9:30 - 9:35 Hvað getur Ísland lagt af mörkum til að standa vörð um mannréttindi á alþjóðavísu? Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra

9:35 - 10.25 Staða mannréttinda á Íslandi og á alþjóðavettvangi

Pallborðsumræður: Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, Silja Bára Ómarsdóttir, dósent við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, Þórlindur Kjartansson, pistlahöfundur hjá Fréttablaðinu, Hanna Katrín Friðriksson, þingkona og Björg Thorarensen, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands.

Umræðustjóri: Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans

10:25 – 10:40 Verðlaunaafhending í smásagnasamkeppni vegna 70 ára afmælis Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna sem haldin var á vegum  Evrópusambandsins á Íslandi, upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu, Rithöfundasambands Íslands og Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands

Michael Mann, sendiherra ESB á Íslandi og Vilborg Davíðsdóttir, varaformaður Rithöfundasambands Íslands, kynna sigurvegara smásagnakeppninnar

10:40 – 10:50 Mikilvægi mannréttinda fyrir komandi kynslóðir

Ritstjórn skuggaskýrslu barna til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna

Jökull Ingi Þorvaldsson

Sunneva Björk Birgisdóttir

Einar Hrafn Árnason

10:50 - 11:00 Lokaorð

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra  

Í tilefni af 70 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna standa samræðuvettvangur um mannréttindi og stýrihópur Stjórnarráðsins um mannréttindi að hátíðarfundi í Veröld - húsi Vigdísar, mánudaginn 10. desember frá kl. 09:00 - 11:00.

70 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna