Hátíð brautskráðra doktora
Aðalbygging
Hátíðasalur
Hátíð brautskráðra doktora fer fram í ellefta sinn í Hátíðasal skólans á fullveldisdeginum 1. desember kl. 13.
Á athöfninni munu doktorar sem brautskráðst hafa frá Háskóla Íslands á tímabilinu 1. desember 2021 til 1. desember 2022 taka við gullmerki skólans.
Doktorsnám við Háskóla Íslands hefur eflst mjög frá aldamótum og hefur framlag doktorsnema til rannsókna og kennslu við skólann átt sinn þátt í aukinni velgengni hans. Í samstarfi við leiðbeinendur sína leggja doktorsnemar af mörkum mikilvægan skerf til þekkingarleitar og nýsköpunar og taka virkan þátt í að efla Háskólann sem alþjóðlega rannsóknastofnun.
Hátíð brautskráðra doktora fer fram í ellefta sinn í Hátíðasal skólans á fullveldisdeginum 1. desember kl. 13. Mynd frá hátíðinni í fyrra.