Kynningarfundur fyrir nýnema á Hugvísindasviði
Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Hugvísindasvið Háskóla Íslands býður nýnemum á kynningarfund í Auðarsal í Veröld – húsi Vigdísar föstudaginn 26. ágúst kl. 13:00. (Smellið hér til að fylgjast með fundinum í streymi).
Dagskrá fundarins:
- Ávarp Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands.
- Kynning á Hugvísindasviði. Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs.
- Kynning á Uglu – innri vef HÍ.
- Kynning á félagsstarfi nemenda.
Að fundinum loknum verða kynningarfundir í deildum og hefjast þeir kl. 14:00. Þar verður greint frá námstilhögun og veittar nánari upplýsingar um nám og félagsstarf í viðkomandi deildum:
- Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði
- Fornleifafræði, stofa 311 í Árnagarði.
- Heimspeki, stofa 304 í Árnagarði.
- Sagnfræði, stofa 301 í Árnagarði.
- Guðfræði- og trúarbragðafræðideild í Aðalbyggingu, stofu 229.
- Íslensku- og menningardeild í Árnagarði, stofu 201.
- Mála- og menningardeild í Veröld - húsi Vigdísar, stofu 023.
Kennsla hefst mánudaginn 29. ágúst. Nýnemadagar Háskóla Íslands hefjast 5. september.
Á nýnemavef Háskóla Íslands, vef Stúdentaráðs og á vef Hugvísindasviðs eru gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema um námið og skólann, þar á meðal stundaskrár. Eins er hægt að fá innsýn í starfið á facebooksíðum skólans og sviðsins og á Instagram síðum sviðs og skóla.
Ef einhverjar spurningar vakna um námið er hægt að hafa samband við starfsfólk á skrifstofu í síma 525 4400, senda okkur tölvupóst á netfangið hug@hi.is eða koma við á skrifstofu sviðsins í Aðalbyggingu (3. hæð); hún er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga.
Stúdentar standa vaktina á upplýsingaborði fyrir nýnema á Háskólatorgi.