Alls konar íslenska: um íslensku vestan við haf og málnotkun nýrra Íslendinga
Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Alls konar íslenska: nokkur atriði um íslensku vestan við haf og málnotkun nýrra Íslendinga
Fyrirlesarar: Matthew Whelpton og Stefanie Bade
Auðarsal, Veröld – húsi Vigdísar, 16. nóvember kl. 16.30-17.30
Stefanie Bade: Breytingar í samfélaginu - breytt mat á máli?
Í fyrirlestri sínum mun Stefanie fjalla um viðhorf Íslendinga til erlends hreims í ljósi þeirra lýðræðislegu og félagslegu breytinga sem hafa átt sér stað í íslenska málsamfélaginu á síðustu árum.
Matthew Whelpton: Vesturíslenska í öðrum orðum.
Í fyrirlestri sínum mun Matthew fjalla um tilraun um merkingu hversdagsorða í vesturíslensku og ýmis mál sem komu upp í sambandi við skráningu orðanna, þ.á.m. hljóðform þeirra.
Alls konar íslenska: um íslensku vestan við haf og málnotkun nýrra Íslendinga