Skip to main content

Fyrirlestur Chimamanda Ngozi Adichie

Fyrirlestur Chimamanda Ngozi Adichie - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
10. september 2021 14:00 til 16:00
Hvar 

Háskólabíó - stóri salurinn

Nánar 
Viðburðinum verður einnig streymt.

Vegna mikils áhuga hefur fyrirlestur Chimamanda Ngozi Adichie verið fluttur í Háskólabíó.

Chimamanda Ngozi Adichie, höfundur Við ættum öll að vera femínistar og Hálf gul sól, flytur erindi í stóra salnum í Háskólabíói föstudaginn 10. september.

Fyrirlesturinn er á dagskrá Bókmenntahátíðar og er haldinn í samvinnu við RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum og Alþjóðlega jafnréttisskólann (GRÓ-GEST).

Fundarstjóri er Irma Erlingsdóttir og hún stýrir jafnframt umræðum eftir fyrirlesturinn.

Viðburðinum verður einnig streymt.

Viðburðurinn á Facebook 

Chimamanda Ngozi Adichie er fædd og uppalin í Nígeríu en fluttist 19 ára gömul til Bandaríkjanna. Hún er margverðlaunuð fyrir skáldsögur sínar Purple Hibiscus (2003), Half of a Yellow Sun (2006) eða Hálf gul sól í þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur og Americanah (2013). Hún er þekkt fyrir fyrirlestur sinn We Should All Be Feminists sem var einnig gefinn út á bókarfomi árið 2014 og kom út í íslenskri þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur undir titlinum Við ættum öll að vera femínistar. Dear Ijeawele, or A Feminist Manifesto in Fifteen Suggestions var gefin út árið 2017 og nýjasta bók hennar, Notes On Grief, sem fjallar um föðurmissi, er nýútkomin. Verk hennar hafa verið þýdd á yfir þrjátíu tungumál.

Húsið opnar kl. 13.00. Skráning er á staðnum í samræmi við samkomutakmarkanir: Gestir verða að skrá sig í sæti með nafni, kennitölu og símanúmeri og nota andlitsgrímu.

Fyrirlesturinn er á dagskrá Bókmenntahátíðar og er haldinn í samvinnu við RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum og Alþjóðlega jafnréttisskólann (GRÓ-GEST).

Fyrirlestur