Skip to main content

Bitcoin viðskipti með aðstoð gervigreindar

Bitcoin viðskipti með aðstoð gervigreindar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
2. desember 2020 15:00 til 16:00
Hvar 

Verður streymt

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hlynur Þór Björnsson flytur fyrirlesturinn Bitcoin viðskipti með aðstoð gervigreindar.

Hlynur hefur undanfarin 15 ár starfað í áhættu- og eignastýringu á íslenska fjármálamarkaðnum. Hlynur er frumkvöðull á Íslandi á sviði rafmynta en hann stofnaði Rafmyntaráð Íslands, skiptimarkaðinn https://isx.is/ og nú síðast Bálka Miðlun, sem er miðlun fyrir Bitcoin og aðrar rafmyntir ásamt því að sinna áhættu- og eignastýringu Bitcoin viðskipta.

Fyrirlestrinum verður streymt á slóðinni: https://eu01web.zoom.us/j/67625020703

Bálkakeðjur á miðvikudögum er fyrirlestraröð með því markmiði að kafa ofan í alla anga rafmynta, frá undirliggjandi tækni til nýtingar og fjárfestinga.

Hlynur Þór Björnsson

Bitcoin viðskipti með aðstoð gervigreindar