Fjarkynning: Hvað veistu um framhaldsnámið við Sálfræðideild HÍ?
Fjarkynning
Í ljósi aðstæðna býður Sálfræðideild ekki upp á árlegan staðfund heldur streymisfund um framhaldsnám í Sálfræðideild HÍ fimmtudaginn 19. mars 2020 kl. 16-17. Hægt verður að fylgjast með streymi hér.
Hægt verður að taka þátt í fundinum og nota textaspjall fyrir fyrirspurnir um námið. Kennarar munu segja frá uppbyggingu námsins, markmiðum þess og helstu áherslum.
Framhaldsnám í hagnýtri sálfræði er tveggja ára nám til 120 eininga. Það skiptist í kjörsviðin Klínísk sálfræði (barna- eða fullorðinslína), Megindleg sálfræði, Samfélag og umhverfi og Skólar og þroski.
Meistaranám í hagnýtri atferlisgreiningu er nýtt þverfaglegt tveggja ára nám til 120 eininga og diplómanám í hagnýtri atferlisgreiningu er eins árs nám til 60 eininga.
Dagskrá fundar:
- Hagnýt atferlisgreining (nýtt nám í samvinnu Sálfræðideildar og deildar Heilsueflingar, íþrótta- og tómstunda á Menntavísindasviði)
- Megindleg sálfræði
- Samfélag og umhverfi
- Skólar og þroski
- Klínísk sálfræði (barna- eða fullorðinslína)
Hægt verður að taka þátt í fundinum og nota textaspjall fyrir fyrirspurnir um námið. Kennarar munu segja frá uppbyggingu námsins, markmiðum þess og helstu áherslum.