Málstofa Guðfræðistofnunar: Íslenskar bænir fram um 1600
Hvenær
18. febrúar 2019 11:40 til 13:00
Hvar
Aðalbygging
Stofa 229
Nánar
Aðgangur ókeypis
Svavar Sigmundsson, fyrrverandi rannsóknarprófessor, flytur fyrirlesturinn „Íslenskar bænir fram um 1600“ á málstofu Guðfræðistofnunar í stofu 229 í Aðalbyggingu HÍ, mánudaginn 18. febrúar kl. 11:40.
Fjallað verður um tildrög bænaútgáfunnar, Íslenskar bænir fram um 1600, sem út kom hjá Stofnun Árna Magnússonar á sl. ári. Lýst verður varðveislu bænanna í handritum og fyrri útgáfum einstakra bæna, sömuleiðis rætt um erlendar heimildir og notkun íslensku bænanna í samfélaginu.
Svavar Sigmundsson, fyrrverandi rannsóknarprófessor.