Kynning á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi
Stakkahlíð / Háteigsvegur
H-202
Fulltrúar frá Skrifstofu alþjóðasamskipta kynna möguleika á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi fyrir nemendum Menntavísindasviðs. Kynningin fer fram í stofu H-202 í Stakkahlíð.
Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 500 háskóla víða um heim og árlega nýta sér fjölmargir að taka hluta af náminu erlendis og sækja sér þannig sérhæfingu í námi og dýrmæta reynslu.
Kostir þess að fara í skiptinám:
» fjölbreyttara og sérhæfðara námsframboð
» einingar metnar
» einfaldara og ódýrara en nám á eigin vegum
» möguleikar á ferða- og dvalarstyrkjum
» niðurfelld skólagjöld við gestaskóla
» tækifæri til að kynnast tungumáli og menningu annarra landa
» alþjóðlegt tengslanet
» dýrmæt reynsla sem nýtist í frekara námi eða á vinnumarkaði
Kynningin er haldin í tengslum við Alþjóðadaga HÍ 22.-26. október.
Alþjóðatorgið
Fimmtudaginn 25. október er svo komið að hápunkti Alþjóðadaga á Háskólatorgi milli kl. 11.30-13.30. Þar gefst nemendum kostur á að kynna sér möguleika á námi erlendis, spjalla við fyrrverandi og núverandi skiptinema, fulltrúa frá sendiráðum og fjölmörgum íslenskum stofnunum og félögum. Dans, tónlist, happdrætti og fleira spennandi verður á dagskrá.
Nánari upplýsingar
Á kynningunni verður farið yfir þau fjölmörgu tækifæri til námsdvalar erlendis sem standa nemendum til boða.