Maura Hiney: fyrirlestur og vinnustofa um vísindasiðferði
Háskólatorg
Litla Torg
Dr. Maura Hiney heldur fyrirlestur á vegum Háskóla Íslands um vísindasiðferði og heilindi í vísindum þriðjudaginn 5. júní nk. kl. 10.00-13.00 á Litla torgi. Yfirskrift erindisins er „Research integrity: What it means, why it is important and how we might protect it”.
Fyrirlesturinn er þverfræðilegur og að honum loknum stýrir Maura vinnustofu um sama efni. Á vinnustofunni verður þátttakendum skipt í hópa sem kryfja þekkt viðfangsefni sem fjallað er um í fyrirlestrinum, s.s. um höfundarétt, ábyrgð höfunda á vísindagreinum, áskoranir tengdar þverfræðilegu samstarfi þar sem unnið er með viðkvæmar upplýsingar, hæfi og valdatengsl, t.d. á milli doktorsnema og leiðbeinenda og hvernig beri að fyrirbyggja og bregðast við dæmum um óheilindi í rannsóknum, svo nokkuð sé nefnt.
Sætafjöldi er takmarkaður og því eru áhugasamir beðnir um að skrá sig á viðburðinn.
Dr. Maura Hiney er yfirmaður deildar sem sér um rekstur og þróun rannsóknaverkefna á sviði heilsu hjá Rannsóknarráði Írlands. Hún hefur sérhæft sig í málefnum sem lúta að heilindum og ráðvendni (integrity) í vísindum og hefur haldið fjölda fyrirlestra og vinnustofur um málið um árabil.
Dagskrá:
10.00-10.10 Opnunarávarp Jóns Atla Benediktssonar rektors
10.10-11.00 Umfjöllun um heilindi í vísindum
11.00-11.20 Kafffihlé
11.20-11.50 Raundæmi (e. Case Study)
11.50-12.00 Stutt hlé
12.00-12.30 Að þróa stefnu um heilindi í vísindum
12.30-13.00 Vinnustofa
Dr. Maura Hiney heldur fyrirlestur á vegum Háskóla Íslands um vísindasiðferði og heilindi í vísindum þriðjudaginn 5. júní nk. kl. 10.00-13.00 á Litla torgi.