Skip to main content
10. nóvember 2017

Varði doktorsritgerð um skrímsl og afmennskun

Arngrímur Vídalín hefur varið doktorsritgerð sína, Skuggsjá sjálfsins: Skrímsl, jöðrun og afmennskun í lærdómshefð íslenskra sagnaritara 1100-1550, við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Andmælendur voru Annette Lassen, rannsóknardósent við Árnasafn í Kaupmannahöfn, og Rudolf Simek, prófessor við Háskólann í Bonn. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Ármanns Jakobssonar, prófessors í íslenskum bókmenntum fyrri alda, og aðrir í doktorsnefnd voru Aðalheiður Guðmundsdóttir prófessor og Daniel Sävborg.

Gunnþórunn Guðmundsdóttir, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal Háskóla Íslands 2. nóvember. (Hér má nálgast myndir sem teknar voru við vörnina).

Um rannsóknina

Rannsóknin rekur uppruna hugmynda miðaldafólks um framandi þjóðir á jaðri heimsins, hvernig þeim var beitt í íslenskum alfræði- og sagnaritum til að skrímslisgera hópa sem þóttu óæskilegir. Rannsóknin er framlag til rannsókna á jaðarsetningu og afmennskun, en einnig til íslenskra sjálfsmyndarrannsókna og rannsókna á bókmenningu fyrri alda. Hún er hluti af rannsóknarverkefninu Encounters with the Paranormal sem stýrt hefur verið af Ármanni Jakobssyni.

Um höfund

Arngrímur Vídalín lauk B.A.-prófi í íslensku árið 2010 og Cand. Mag. í norrænum málum og bókmenntum við Árósaháskóla árið 2012. Á námstímanum hlaut hann styrki frá Árnanefnd í Kaupmannahöfn og Rannsóknasjóði Háskóla Íslands. Þá kenndi hann eitt misseri við Háskólann í Slesíu í Katowice, Póllandi, auk eins misseris við námsdvöl við Harvardháskóla í Bandaríkjunum. Hann vinnur nú að bók um Grettis sögu með styrkjum frá Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna og Hagþenki.