9. júní 2017
Doktorsnemar frá Uppsalaháskóla í heimsókn
Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands fékk doktorsnema í heimsókn frá Háskólanum í Uppsölum í Svíþjóð 8. júní sl.
Formaður doktorsnámsins í Viðskiptafræðideild ásamt doktorsnemendum tóku á móti sænsku nemendunum. Bæði íslensku og sænsku doktorsnemendurnir kynntu doktorsverkefnin sín og í framhaldi sköpuðust áhugaverðar, gagnlegar og oft heitar umræður um áherslur og aðferðafræði rannsókna.
Dagurinn tókst með eindæmum vel og nemendur kvöddu með bros á vör.