Skip to main content
24. janúar 2017

Opinber vörn meistararitgerðar við Lagadeild

Sigurlaug Soffía Friðþjófsdóttir stud. jur. ver meistararitgerð sína föstudaginn 27. janúar

kl. 12.30 í stofu 201 í Lögbergi. Yfirskrift hennar er „Túlkun á jákvæðum skyldum ríkisins á sviði mannréttinda í íslenskri réttarframkvæmd – með hliðsjón af réttarvernd fatlaðs fólks“. 

Í fyrirlestrinum mun Sigurlaug fjalla um fræði og kenningar sem lúta að túlkun laga, hlutverki dómstóla og jákvæðum skyldum ríkja. Réttarvernd fatlaðs fólks í íslensku réttarkerfi verður skoðuð og söguleg þróun laga og dómaframkvæmdar á því sviði greind. Þá verður gerð grein fyrir hvernig túlkun á jákvæðum skyldum ríkisins gagnvart fötluðu fólki hefur þróast í meðförum dómstóla hér á landi og ályktað um mögulega áhrifaþætti sem liggja til grundvallar þróuninni.

Niðurstöður athugunar á dómaframkvæmd leiða í ljós að á tilteknu tímabili hafi orðið stefnubreyting í aðferðum dómstóla við túlkun á jákvæðum skyldum ríkisins gagnvart fötluðu fólki.

Að loknu erindi Sigurlaugar verður boðið upp á fyrirspurnir og umræður.

Leiðbeinandi og fundarstjóri: Brynhildur G. Flóvenz, dósent við Lagadeild Háskóla Íslands.

Prófdómari: Ragnar Aðalsteinsson hrl.

Allir velkomnir

Sigurlaug Soffía Friðþjófsdóttir
Sigurlaug Soffía Friðþjófsdóttir