Skip to main content
23. júní 2020

Tækifæri fyrir nemendur í frjóu umhverfi Sjávarklasans

Nemendum Háskóla Íslands sem vinna að verkefnum, rannsóknum og nýsköpun tengdri bláa hagkerfinu býðst nú að nýta aðstöðu í frjóu umhverfi í Húsi sjávarklasans við Grandagarð. Samningur þar að lútandi á milli Háskólans og Sjávarklasans var undirritaður á dögunum.

Bláa hagkerfið snýr eins og nafnið bendir til að hafinu bláa, vötnum og ám og nýtingu þeirra auðlinda sem þar er að finna, hvort sem er í tengslum við sjávarútveg, líftækni, fiskeldi, vísindastarf eða aðrar greinar.

Starfsemin í Húsi sjávarklasans að Grandagarði 16 hverfist mjög um bláa hagkerfið en þar hefur í nærri áratug verið lögð áhersla á að veita fyrirtækjum og frumkvöðlum tækifæri til að skapa ný verðmæti sem tengjast m.a. sjávarútvegi eða haftengdri starfsemi. Þar eru nú um 70 fyrirtæki af ýmsum stærðum og gerðum, þar á meðal sprotafyrirtæki, eins og Wasabi Iceland og Akthelia, og rótgróin fyrirtæki eins og Marel, en þessi þrjú fyrirtæki eiga öll rætur að rekja til rannsókna og nýsköpunar innan Háskóla Íslands.

Fulltrúar Háskóla Íslands, sem koma með einhverjum hætti að bláa hagkerfinu, heimsóttu Sjávarklasann á dögunum og kynntu sér aðstöðuna undir leiðsögn Þórs Sigfússonar, stofnanda Sjávarklasans, og Bertu Daníelsdóttur, framkvæmdastjóra klasans, en þess má geta að klasinn byggist á hugmynd sem Þór vann að í doktorsverkefni sínu við Háskóla Íslands. Heimsóknin var í framhaldi af undirritun samnings við klasann um leigu á húsnæði þar sem nemendur Háskólans geta unnið að sínum verkefnum í þessu skemmtilega og frjóa umhverfi. Alls er pláss fyrri 8-10 nemendur í húsnæðinu og geta þeir nýtt aðstöðuna til lengri eða skemmri tíma, allt ef því hvernig þeim hentar. Þannig er vettvangurinn t.d. kjörinn fyrir þau sem vinna að sumarrannsóknum eða sumarstörfum af einhverju tagi. 

Þeir nemendur sem hafa áhuga á að nýta aðstöðuna geta leitað til Bertu Daníelsdóttur, framkvæmdastjóra Sjávarklasans (berta@sjavarklasinn.is), eða Sæunnar Stefánsdóttur, forstöðumanns Stofnunar rannsóknasetra HÍ og sérfræðings á skrifstofu rektors, (saeunnst@hi.is).
 

Frá heimsókn fulltrúa Háskóla Íslands í Sjávarklasann.