Skip to main content
5. október 2020

Sex umsóknir um starf forseta Hugvísindasviðs

""

Starf forseta Hugvísindasviðs Háskóla Íslands var nýverið auglýst laust til umsóknar og rann umsóknarfrestur út 30. september sl. Alls bárust sex umsóknir um starfið og einn dró umsókn til baka.

Forseti Hugvísindasviðs er ráðinn af rektor til fimm ára frá 1. janúar 2021. Hann starfar í umboði rektors, er yfirmaður fræðasviðsins, stýrir daglegri starfsemi og er akademískur leiðtogi þess. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skipar rektor sérstaka nefnd til að undirbúa ákvörðun um ráðningu forseta fræðasviðs og tekur nefndin til starfa á næstu dögum.  

Þau sem sóttu um starfið eru: 
1.    Berglind Ósk Sævarsdóttir, þróunartæknifræðingur
2.    Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri
3.    Lars Gunnar Lundsten, forstöðumaður 
4.    Marcin Zembrowski,  sérfræðingur
5.    Ólöf Garðarsdóttir, prófessor                           
 

Aðalbygging speglast í Háskólatorgi