Skip to main content
3. maí 2022

Háskólalestin heimsækir fjóra áfangastaði í vor

Háskólalestin heimsækir fjóra áfangastaði í vor - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskólalest Háskóla Íslands brunar aftur af stað í maímánuði og heimsækir fjóra áfangastaði á landsbyggðinni. Þar mun frábær hópur kennara bjóða upp á fjölbreytt námskeið og smiðjur bæði fyrir nemendur og kennara og slá upp vísindaveislum í samstarfi við heimamenn.

Háskólalestin hefur verið starfrækt frá aldarafmælisári Háskóla Íslands árið 2011 og megináherslan í starfi hennar er á að kynna vísindi á lifandi og fjölbreyttan hátt fyrir ungu fólki, styðja við starf grunnskóla og efla tengsl við landsmenn á öllum aldri. Í áhöfn Háskólalestarinnar eru kennarar og nemendur við Háskóla Íslands, sem flestir hverjir eru líka leiðbeinendur í Vísindasmiðju HÍ og Háskóla unga fólksins. 

Þetta vor verða áfangastaðir Háskólalestarinnar fjórir:

  • Hvolsvöllur (5.-6.maí)
  • Grindavík (12.-14.maí)
  • Dalvík (19.-21.maí) 
  • Ólafsvík (26.-28.maí).

Háskólestin, sem hlotið hefur Vísindamiðlunarverðlaun Rannís, hefur heimsótt hátt á fjórða tug áfangastaða um allt land frá upphafi og fengið einstakar móttökur hvert sem komið er. Það er því alltaf mikið tilhlökkunarefni að hefja ferðina ár hvert en allt starf lestarinnar er skipulagt í nánu samstarfi við sveitarfélög og skóla hvers áfangastaðar. 

Lestin hefur hins vegar ekki farið varhluta af heimsfaraldrinum mikla. Vorið 2020 var hún alfarið kyrrsett og vorið 2021 mótaðist skipulag hennar að stórum hluta af faraldrinum. Loksins stefnir í ferð án hindrana og sem fyrr verður ekkert slegið af metnaðarfullum og einkar áhugaverðum námskeiðum sem í boði verða á hverjum áfangastað.

Sú nýjung verður áfram í Háskólalestinni að sérstakar kennarasmiðjur verða í boði auk námskeiðanna fyrir unga fólkið. Vísindasmiðja Háskóla Íslands hefur undanfarin ár boðið kennurum í fjölbreyttar smiðjur með áherslu á verklega fræðslu og tilraunir. Mikil eftirspurn hefur verið eftir endurmenntun af þessu tagi og nú verða valdar smiðjur í boði fyrir kennara á landsbyggðinni líkt og síðasta vor. 

Þá verður enn fremur boðið upp á vísindaveislur í samkomuhúsum á flestum áfangastaðanna þar sem gestir og gangandi á öllum aldri geta kynnt sér undur vísindanna í gegnum skemmtilega leiki, tæki og þrautir. Viðburðirnir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis.

Hægt verður að fylgjast með ferðum Háskólalestarinnar á vef hennar.
 

Íslandskort sem sýnir áfangastaði lestarinnar