Skip to main content
31. mars 2021

Bók um #MeToo og baráttu gegn áreitni og ofbeldi

Bók um #MeToo og baráttu gegn áreitni og ofbeldi - á vefsíðu Háskóla Íslands

Fimmta hefti ritraðar RIKK er tileinkað #MeToo og baráttu kvenna gegn áreitni og ofbeldi. Í bókinni nálgast höfundar efnið frá fjölbreytilegu sjónarhorni. #MeToo er sett í sögulegt samhengi innan kvennahreyfingarinnar. Fjallað er um hvernig ótti kvenna við kynferðisofbeldi birtist í íslenskum bókmenntum. Frásagnir kvenna sem störfuðu sem ráðskonur á síðari hluta 20. aldar af kynbundnu ofbeldi eru teknar til skoðunar. Sjónum er beint að því viðhorfi sem konur mæta í heilbrigðiskerfinu og fjallað um áhrif kynferðisofbeldis á heilsu þeirra.

Jafnframt er vikið að hugmyndum ungra karlmanna um kynheilbrigði og #MeToo. Rýnt er í sálrænar afleiðingar margþættrar mismununar í garð fatlaðra kvenna og það kerfislæga misrétti sem #MeToo-sögur kvenna af erlendum uppruna á Íslandi afhjúpa. Spurt er hvort #MeToo-hreyfingin sé þáttur í breyttum mannskilningi sem bjóði hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar byrginn og rýnt er í mótstöðuna gegn #MeToo.

Ritstjórar bókarinnar eru Elín Björk Jóhannsdóttir, Kristín I. Pálsdóttir og Þorgerður H. Þorvaldsdóttir. Auk formála eru 11 greinar í Fléttum V. Höfundar greina eru Irma Erlingsdóttir, Soffía Auður Birgisdóttir, Þorgerður H. Þorvaldsdóttir, Guðbjörg Lilja Hjartardóttir, Dalrún J. Eygerðardóttir, Guðrún Steinþórsdóttir, Sigrún Sigurðardóttir, Sigríður Halldórsdóttir, Lóa Guðrún Gísladóttir, Ragný Þóra Guðjohnsen, Sóley S. Bender, Freyja Haraldsdóttir, Nanna Hlín Halldórsdóttir, Eyja Margrét Brynjarsdóttir og Nichole Leigh Mosty. Bókin hlaut styrk úr Jafnréttissjóði Íslands.

Fimmta hefti ritraðar RIKK er tileinkað #MeToo og baráttu kvenna gegn áreitni og ofbeldi. Ritstjórar bókarinnar eru Elín Björk Jóhannsdóttir, Kristín I. Pálsdóttir og Þorgerður H. Þorvaldsdóttir.