Skip to main content

Við kynnum prófessor: Viðar Örn Eðvarðsson

Við kynnum prófessor: Viðar Örn Eðvarðsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
3. mars 2021 15:00 til 16:00
Hvar 

Læknagarður

201

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þann 3. mars flytur Viðar Örn Eðvarðsson, prófessor í barnalæknisfræði við Læknadeild, fyrirlestur í tilefni að framgangi sínum í stöðu prófessors.

Yfirskrift fyrirlesturins: 

Adenínfosfóríbósýltransferasa-skortur: ferðalag um vegi vísindanna í þágu sjúklinga

Fyrirlesturinn fer fram í stofu 201 í Læknagarði (hámark 20 pers.) og í streymi: https://eu01web.zoom.us/j/63142424422 

Á Heilbrigðisvísindasviði er haldið upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri.

Athafnirnar hefjast með stuttu yfirliti yfir helstu störf viðkomandi prófessors, en svo tekur hann sjálfur við og flytur erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum.

Í lok athafnarinnar gefst svo tækifæri til þess að spjalla og gleðjast með hinum nýja prófessor.

Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans, en einnig til þess að hefja prófessorsstarfið til vegsemdar.

Allir velkomnir

Þann 3. mars flytur Viðar Örn Eðvarðsson, prófessor í barnalæknisfræði við Læknadeild, fyrirlestur í tilefni að framgangi sínum.

Við kynnum prófessor: Viðar Örn Eðvarsson