MS fyrirlestur í matvælafræði - Kaja Gertin Grétarsdóttir
Læknagarður
Stofa 201
Meistaranemi: Kaja Gertin Grétarsdóttir
Heiti verkefnis: Þróun á D-vítamínbættum gúmmíböngsum og geymsluþol þeirra.
___________________________________________
Deild: Matvæla- og næringarfræðideild
Leiðbeinendur: Kristberg Kristbergsson
Prófdómari: Jóhanna Eyrún Torfadóttir
Ágrip:
Markmið verkefnisins var að þróa D-vítamín gúmmíbangsa og skoða geymsluþol þeirra við geymslu í stofuhita. Skoðuð voru áhrif gelatíns, agars, jarðaberja- og gulrótarsafa á geymsluþolsþættina (áferð, lit, D-vítamín virkni og skynmat) yfir 14 vikna tímabil. Niðurstöðurnar sýndu að geymsluþol allra gúmmíbangsanna var stutt. Virkni D-vítamíns var lengur til staðar í gelatín böngsunum í samanburði við agar bangsana. Agar bangsarnir urðu klístraðri á meðan gelatín bangsarnir urðu stífari með tímanum. Liturinn dvínaði í öllum tegundum og þótti skynmatsdómurunum liturinn í einni tegund versna yfir geymslutímann.